Markmið og mælikvarðar

Með framlagningu fjármálaáætlunar fyrir árin 2026–2030 var birting markmiða og mælikvarða málaflokka færð í tíma þannig að hún yrði samhliða ársskýrslum ráðherra en hafði áður verið birt með fjármálaáætlun. Með því að birta markmið og mælikvarða fjármálaáætlunar á sama tíma og árangursmat fer fram er ætlunin að skapa góða samfellu milli mats á fyrri aðgerðum og mótunar nýrra markmiða ef við á.

Fyrirkomulagið auðveldar mat á því hvort aðgerðir sem ráðist hefur verið í séu líklegar til að ná tilætluðum árangri. Ef niðurstöður árangursmatsins benda til þess að grípa þurfi til nýrra eða breyttra aðgerða, er það gert við vinnslu fjárlagafrumvarpsins. Með þessu myndast virk tenging milli stefnumótunar og árangursmats, sem stuðlar að markvissari ákvarðanatöku og bættri nýtingu opinberra fjármuna.

Stefna málefnasviðs og málaflokka sem og markmið þeirra og mælikvarðar eru á ábyrgð hvers ráðherra fyrir sig. Vakin er athygli á því að rauntölur fyrir mælikvarða eru ekki endanlegar en í sumum tilfellum eiga þær við um árið 2025. Mælaborðið verður uppfært jafnóðum fram að framlagningu ársskýrslu ráðherra þegar frekari gögn liggja fyrir.

Skýrslan inniheldur stefnu, markmið, mælikvarða, raunstöðu og viðmið í hverjum málaflokki. Hægt er að velja málefnasvið og málaflokk í fellivalslista til þess að skoða þau markmið sem sett hafa verið fyrir hvern málaflokk. Jafnframt má á síðunni sjá stutta lýsingu á hverjum málaflokki ásamt útgjaldaramma, þ.e. ríkisreikningi 2024, fjárheimildum 2025 og fjárlögum 2026.