Gögn og upplýsingatækni - Rammagrein 6

Bætt nýting gagna og markviss uppbygging samhæfðra tækniinnviða skapar grundvöll fyrir skilvirkari þjónustu, betri yfirsýn yfir rekstur og sterkari forsendur gagnadrifinnar ákvarðanatöku. Sjálfvirkni ferla og samræmd miðlun gagna dregur úr tímafrekri vinnslu, minnkar líkur á misræmi og stuðlar að betri nýtingu mannauðs. Skipan gagnastjóra undir hatti Stafræns Íslands er mikilvægt skref til að tryggja samræmda stefnu, skýra ábyrgð og heildarsýn í meðferð og hagnýtingu gagna ríkisins.

Tækniskuld síðustu ára felst einkum í sundurleitu kerfalandslagi, ósamræmdum gagnalíkönum og skorti á yfirsýn yfir uppruna, gæði og nýtingu gagna. Slík staða leiðir til tvíverknaðar, aukinnar rekstraráhættu og hærri kostnaðar til lengri tíma. Forgangur næstu ára er að einfalda kerfalandslagið með það að leiðarljósi að samræma gagnaskilgreiningar, styrkja gagnastjórnun, tryggja rekjanleika og setja mælanleg viðmið um gagnagæði.

Uppbygging upplýsingatæknimála í rekstri ríkisins mun til framtíðar byggjast á sameiginlegum tæknilegum viðmiðum, samræmdri áhættustýringu og forgangsröðun verkefna með heildarhagsmuni ríkisins að leiðarljósi. Faglegt eignarhald gagna verður áfram í höndum viðkomandi stofnana, en tæknilegir innviðir, öryggisrammi og samhæfing gagna byggð upp á sameiginlegum viðmiðum þar sem stærðarhagkvæmni og samnýting er nýtt til fulls.

Með markvissum aðgerðum á þessu sviði verður lagður traustur grunnur að samræmdum og heildstæðum stafrænum innviðum ríkisins þar sem gögn eru áreiðanleg, aðgengileg og örugg. Slík framtíðarsýn styður við aukið aðhald, skilvirkari ráðstöfun fjármuna og betri þjónustu við almenning og atvinnulíf til lengri tíma.