Mælaborð árangursupplýsinga - Rammagrein 7
Á fyrstu árum eftir innleiðingu laga um opinber fjármál var stefnumörkun málefnasviða og málaflokka birt í greinargerð með fjármálaáætlun, þrátt fyrir að lögin geri ekki kröfu um slíkt, enda var ekki annar samræmdur vettvangur til þess. Með fjármálaáætlun 2025–2029 var hins vegar tekin upp ný nálgun þar sem stefnumörkun er kynnt með öðrum hætti og ekki birt í þingskjali. Þetta verklag samræmist betur lögunum, þar sem fjármálaáætlun byggist á málefnasviðum, ekki málaflokkum, og lögin gera ekki ráð fyrir að öll stefnumótun sé birt í greinargerðinni. Er þar horft til 5. gr. laganna þar sem segir að í fjármálaáætlun skuli kynna stefnumótun málefnasviða. Samhliða framlagningu fyrrnefndrar fjármálaáætlunar voru markmið og mælikvarðar fyrir málaflokka birt á vefsíðu Stjórnarráðsins.
Í gildandi fjármálaáætlun var gengið enn lengra í að skerpa á rammafjárlagagerð í anda laga um opinber fjármál með því að færa birtingu á stefnu málaflokka, þ.e. markmið og mælikvarða, aftar í tíma og þau birt samhliða ársskýrslum ráðherra. Þessi breyting tryggir að stefnumörkun málaflokka geti farið fram þegar fjárheimildir liggja fyrir, en fjárhagsrammar sem birtir eru í fjármálaáætlun eru aðeins sundurliðaðir eftir málefnasviðum í samræmi við kröfur laganna. Með þessari breytingu fæst jafnframt betri samlegð við vinnu fagráðuneyta á uppgjöri fyrirliggjandi mælikvarða í ársskýrslum ráðherra. Með því að birta markmið og mælikvarða málaflokka á sama tíma og árangursmat fer fram, skapast eðlileg samfella milli mats á fyrri aðgerðum og mótunar nýrra markmiða ef við á. Þetta fyrirkomulag auðveldar einnig að meta hvort þær aðgerðir sem ráðist hefur verið í séu líklegar til að ná tilætluðum árangri.
Lög um opinber fjármál fólu í sér innleiðingu á árangursmiðaðri áætlanagerð og þar til á síðasta ári voru árangursupplýsingar birtar í þremur ólíkum ritum; markmið og mælikvarðar í fjármálaáætlun, verkefni og aðgerðir í fjárlagafrumvarpi og staða markmiða og aðgerða í ársskýrslu ráðherra. Nú er haldið utan um þessar upplýsingar í miðlægum gagnagrunni og þær eru settar fram í mælaborði á vef Stjórnarráðsins og gagnvirkri ársskýrslu ráðherra. Vefframsetningin er í sífelldri þróun með það að leiðarljósi að auðvelda eftirfylgni og bæta yfirsýn. Með uppfærslu mælaborðsins í vor er gert ráð fyrir að birta meiri upplýsingar um hvern málaflokk, þ.e. kynningu á stefnu hvers málaflokks samhliða markmiðum og mælikvörðum. Markmiðið er að á einum stað sé auðveldlega hægt að átta sig á árangri af ráðstöfun fjárveitinga í hverjum málaflokki fyrir sig og þróun yfir tíma.