Ný umgjörð um fjárfestingar ríkisins og nýtt innviðafélag - Rammagrein 3

Unnið er að þróun á nýrri umgjörð um stærri og flóknari fjárfestingar ríkisins sem mun setja sameiginlegan ramma um undirbúning og ákvarðanatöku slíkra verkefna. Fjárfestingar munu byggja á langtímasýn og vera tilgreindar í fjármálaáætlun.

Í nýrri umgjörð eru ábyrgð og boðleiðir skilgreindar frá upphafi með skýru hlutverki ráðuneyta, framkvæmdaraðila og faglegs aðhalds. Ákvarðanir um framgang verkefna eru teknar á afmörkuðum stigum þar sem rýni og mat aukast í samræmi við umfang og flækjustig verkefna og í stærri verkefnum getur komið til sjálfstæðrar rýni áður en ákvörðun er tekin um næstu skref.

Með þessu verklagi er leitast við að tryggja að ríkið skuldbindi sig aðeins til framkvæmda þegar forsendur verkefna hafa verið fullmótaðar og metnar samkvæmt samræmdu ferli. Markmiðið er betri yfirsýn yfir fjárfestingar ríkisins og ábyrg meðferð opinbers fjár.


Tilefnisgreining, valkostagreining, áætlanagerð, framkvæmd, skilamat. 

Nýtt innviðafélag

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að auka eigi fjárfestingar í samgöngum. Markmiðið er að hefja kraftmiklar framkvæmdir um allt land, rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð og vinna á viðhaldsskuld í vegakerfinu. Bættir samgönguinnviðir skila þjóðarbúinu mælanlegum ábata, en lykilatriði er jafnframt að auka umferðaröryggi til muna, stytta umferðarleiðir og bæta tengingar milli byggða og atvinnusvæða.

Til að tryggja þessa uppbyggingu hefur verið lagt fram frumvarp til laga og er unnið að undirbúningi að stofnun innviðafélags, að fyrirmynd nágrannalanda okkar. Félaginu er ætlað að skapa skilyrði til að stýra uppbyggingu mikilvægra samgönguinnviða á rekstrarlega sjálfbæran hátt, þ.e. að mestu leyti utan A-hluta ríkissjóðs, með innheimtu veggjalda á nýframkvæmdum og tilteknum þegar byggðum innviðum þar sem gjaldtaka er þegar hafin eða stendur til að hefja, enda tengist það umbótum á afmörkuðu kerfi samgöngumannvirkja sem skilgreind er sem ein heild. Sjálfstæð tekjuöflun félagsins gerir því kleift að taka lán á markaði til langs tíma og hraða með því uppbyggingu verkefnanna umfram hefðbundin ríkisverkefni sem fjármögnuð eru á fjárlögum hvers árs og í fjármálaáætlun. Til greina kemur að fela félaginu þegar byggð samgöngumannvirki  í formi eigin fjár.

Slík fjármagnsskipan styður jafnframt við það markmið að mögulegt sé að félagið flokkist sem C-hluta félag utan hins opinbera í þjóðhagsreikningum, þ.e. utan A-hluta ríkissjóðs. Fjárhagsleg áhrif á A-hluta ríkissjóðs, þ.e. afkomu og skuldir, vegna umsvifa félagsins eru því lágmörkuð og taka aðeins til þess framlags sem ríkissjóður kann að tryggja félaginu með samningum, t.d. með skuggagjöldum, eða sem eigið fé. Þá getur verið um að ræða hreyfingar sem varða eigna- og skuldastöðu ríkissjóðs í tengslum við eiginfjárframlög úr ríkissjóði eða tilfærslu eigna í félagið. Þessar breytingar munu skýrast nánar á komandi mánuðum og kunna að hafa áhrif á forsendur fjárlagafrumvarps vegna ársins 2027 í haust.

Sem sjálfstæður lögaðili sem ætlað er að starfa á sjálfbærum fjárhagslegum grundvelli verður það markmið félagsins að skila samfélaginu sem mestum ábata með sem minnstum tilkostnaði. Með vönduðum undirbúningi verða sköpuð skilyrði fyrir faglega og skilvirka verkefnisstjórn sem mun bæði hraða fjárfestingum og flýta uppbyggingu þjóðhagslega mikilvægra samgöngumannvirkja.