Nýir möguleikar með sameinuðu sýslumannsembætti – Þjónustumiðstöð hins opinbera - Rammagrein 5
Sýslumannsembættin eru öflugar þjónustustofnanir og eru fremstar meðal stofnana sem veita góða stafræna þjónustu. Mikil tækifæri eru til að bæta þjónustuna enn frekar og tryggja nútímalega og samræmda þjónustu við almenning. Við sameininguna mun yfirbygging minnka en markmiðið er að þjónusta haldist óbreytt eða batni.
Með einu embætti og auknum sveigjanleika verður hægt að hraða innleiðingu stafrænna lausna sem skilar sér í betri þjónustu við almenning á landinu öllu. Einfaldara verður að taka ákvarðanir um tilfærslu sérhæfðari verkefna og starfa til starfsstöðva á landsbyggðinni.
Starfsstöðvar verða áfram þær sömu og aðgengi jafn greitt að þjónustu og verður því hægt að leita þjónustu við sitt hæfi hvar sem er. Dreift net starfsstöðva embættisins um allt land nýtist til að auka samstarf við aðrar stofnanir og stjórnvöld.
Almenningur geti þannig leitað á einn stað til að fá leiðbeiningar og eftir atvikum afgreiðslu sinna mála. Með staðbundnum starfsstöðvum geta þeir sem geta ekki nýtt sér eða kjósa ekki að nýta sér stafrænar lausnir sótt sér staðbundna mannlega þjónustu og aðstoð.