Inngangur
Í greinargerð með fjármálaáætlun skal kynna stefnumótun fyrir einstök málefnasvið ríkissjóðs og hvernig hún samræmist markmiðum um þróun tekna og gjalda. Um framsetningu og framkvæmd stefnumótunar fyrir öll málefnasvið eiga við sömu sjónarmið þrátt fyrir ólíkt eðli og umfang starfsemi. Í því samhengi skal lögð áhersla á skýrleika, einfaldleika og gagnsæi. Framsetning kynningar á stefnu málefnasviða er því samræmd og umfjöllun um efnisþætti eðlislík. Slíkt auðveldar yfirsýn og einfaldar samanburð þvert á málefnasvið.
Fjárheimildum ríkissjóðs er skipt niður á 35 málefnasvið sem svo skiptast í 105 málaflokka. Í samræmi við lög um opinber fjármál eru heildarfjárheimildir ríkissjóðs settar fram í fjármálaáætlun með sundurliðun niður á málefnasvið. Sá útgjaldarammi sem Alþingi ályktar um fyrir hvert málefnasvið er svo nánar útfærður á málaflokka og einstök verkefni í fjárlagafrumvarpi hvers árs og fylgiriti með því. Samhliða þeirri útfærslu eru markmið og mælikvarðar sett fyrir hvern málaflokk, enda eðlilegt að markmiðasetning byggi á því að fjárhagsrammi málaflokks liggi fyrir. Slík framsetning tryggir skýrari tengingu milli stefnu og fjármuna og styður við árangursmat og eftirfylgni á raunhæfum grunni.
Hér á eftir er kynning á stefnumótun málefnasviðanna 35. Leitast er við að kynningin sé hnitmiðuð og skýr þar sem helstu áherslur á hverju málefnasviði eru dregnar fram ásamt framtíðarsýn og meginmarkmiðum. Jafnframt er greint frá áformum stjórnvalda um hvernig verður brugðist við áskorunum og sagt frá lykilbreytingum á fjárhagsramma málefnasviðsins. Heildstæðari umfjöllun um stefnumótun málefnasviða og málaflokka, þ.m.t. markmið og mælikvarða, er birt í mælaborði á sérstöku vefsvæði Stjórnarráðsins. Unnið hefur verið að því undanfarin ár að koma stefnumótun málefnasviða og málaflokka á vefinn. Slíkt bætir yfirsýn og auðveldar enn frekar samanburð og eftirfylgni með stefnumörkun, markmiðasetningu og þróun á árangursmælikvörðum. Þannig má skoða stefnumörkun síðustu ára með nokkrum smellum í stað þess að fletta upp í áætlunum fyrri ára. Nánar er fjallað um þessa breytingu í meðfylgjandi rammagrein.
Grundvöllur umfjöllunar um málefnasvið og mótun stefnu fyrir þau eru þær aðgerðir sem gerð er grein fyrir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Þær endurspeglast í helstu áherslum hvers málefnasviðs og í markmiðum og mælikvörðum hvers málaflokks þegar þar að kemur.
Uppbygging á kynningu stefnumótunar málefnasviða
Hér á eftir er kynnt stefna málefnasviða ríkissjóðs. Þar eru dregin fram eftirfarandi atriði:
- Helstu áherslur lýsa forgangsmálum á málefnasviðinu.
- Framtíðarsýn lýsir þeim framförum sem ætlað er að ná til lengri tíma, sem dæmi um aukið virði fyrir samfélagið.
- Meginmarkmið lýsir tilætluðum áhrifum af starfsemi stjórnvalda, ráðuneyta og ríkisaðila fyrir samfélagið, sem dæmi um hag fyrir borgara og skattgreiðendur – og styður jafnframt við framtíðarsýn.
- Stefna málefnasviðs dregur fram lykiláskoranir við að ná framtíðarsýn og meginmarkmiðum og hvernig ríkisstjórnin hyggst bregðast við þeim.
- Fjármögnun dregur fram helstu lykilatriði eða breytingar á fimm ára fjárhagsramma málefnasviðs ásamt fjárheimildum málefnasviðsins.
Mælaborð árangursupplýsinga - Rammagrein 7