02 Dómstólar
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð dómsmálaráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka, sem sjá má í eftirfarandi töflu, ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og málefnasviðsins í heild á tímabilinu 2024–2026.
Helstu áherslur 2027–2031
Framtíðarsýn og meginmarkmið
Meginmarkmið málefnasviðsins og framtíðarsýn er að traust ríki til dómstóla, m.a. með því að tryggja hraðari málsmeðferðartíma og aðgengilegar upplýsingar um starfsemi dómstóla. Þá er mikilvægt að tryggja öryggi almennings og þeirra sem starfa hjá dómstólum, ásamt áreiðanleika gagna og upplýsinga.
Stefna málefnasviðsins
Unnið er að því að nýta stafrænar leiðir við meðferð mála fyrir dómstólum að því marki sem samræmist réttaröryggi og meginreglum réttarfars, þar á meðal um opinbera og milliliðalausa málsmeðferð. Í því felst að gögn og upplýsingar fari rafrænt til og frá dómstólum og á milli dómstiga og annarra stofnana réttarvörslukerfisins, auk þess sem málsmeðferð verði rafræn fram að aðalmeðferð. Þetta getur stuðlað að skilvirkari málsmeðferð, með einfaldari ferlum, fækkun ferða til og frá dómstólum og minni pappírsnotkun. Helstu áskoranir stafrænnar vegferðar tengjast kostnaði við þróun á kerfum og óvissu varðandi þann tíma sem hún tekur, þjálfun starfsfólks og innleiðingu á breyttu verklagi. Einnig þarf að tryggja öryggi við rekstur og notkun slíkra kerfa.
Með þessum breytingum er stefnt að aukinni skilvirkni og bættri þjónustu við meðferð dómsmála. Í því felst að aðgengi að dómstólum verði greiðara og afköst og hagkvæmni aukist með betri nýtingu tíma og fjármagns.
Öflun og greining upplýsinga, þar á meðal tölfræðileg greining og miðlun þeirra til almennings og notenda þjónustu dómstóla, er mikilvæg til að efla traust til dómskerfisins og stuðla að upplýstri umræðu um starfsemi þess. Upplýsingarnar eru einnig mikilvægar við mat á skilvirkni, dreifingu álags og tækifærum til umbóta. Helstu áskoranir við að bæta upplýsingagjöf varða þróun málaskrár og samræmda skráningu upplýsinga í gagnagrunna málaskrárkerfisins. Unnið er að breytingum á málaskrá og samræmingu verklags við skráningu.
Öryggi starfsfólks og þeirra sem koma í húsnæði dómstóla er grundvallaratriði en aðstaða víða uppfyllir ekki nútímaöryggiskröfur. Nauðsynlegt er því að móta heildstæða framtíðarsýn um húsnæði dómstóla og bæta aðstöðu með það að markmiði að tryggja betur öryggi starfsfólks, almennings, upplýsinga og gagna á tímabili áætlunarinnar.
Sjálfstæðir héraðsdómstólar eru í dag átta með jafn margar starfsstöðvar um land allt. Stefnt er að því með sameiningu héraðsdómstóla að efla starfsemi þeirra og jafna álag en þó þannig að starfsstöðvar verði áfram á sömu stöðum og nú.
Helstu breytingar á fjármögnun málefnasviðsins
Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar. Fjárheimildir málefnasviðsins lækka um 128 m.kr. á tímabilinu vegna sameiningar héraðsdómstóla og annarra sértækra hagræðingaraðgerða.