05 Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og málefna­sviðsins í heild á tímabilinu 2024–2026.

Heildarútgjöld í m.kr.

Helstu áherslur 2027–2031

Betri og hagkvæmari ríkisrekstur

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Styrk stjórn fjármála stuðli að hallalausum ríkisfjármálum og styðji við skilvirka þjónustu og bætt lífskjör á Íslandi.

Rekstur og þjónusta ríkisins stuðli að verðmætasköpun, sé samræmd, gagnsæ og hagkvæm.

Stefna málefnasviðsins

Ríkisstjórnin leggur megináherslu á að ná stöðugleika í efnahagslífi og lækkun vaxta, með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins. Tækifæri eru á málefnasviðinu til að stuðla að því markmiði, m.a. með skilvirkara skattkerfi, auknum ábata eigna og fjárfestinga, áframhaldandi stafvæð­ingu þjónustu, auknum aga, öflugra verklagi við ríkisfjármál og reglulegu endurmati á útgjöld­um ríkisins.

Áfram verður lögð áhersla á bætt skattskil með stöðlun gagna og sjálfvirknivæðingu í skatt- og tollakerfum. Jafnframt er mikilvægt að halda áfram á þeirri vegferð að bæta skattskil með því að fækka undanþágum í skattkerfinu og loka glufum. Kerfislegar stafrænar umbreytingar og þróun regluverks og samtímaeftirlits munu styðja við öflugra skatt- og tolleftirlit í rauntíma með áherslu á áhættugreiningu og vinnu gegn peningaþvætti.

Með markvissri stýringu á efnahagsreikningi ríkisins má ná fram meiri arðsemi og ábata af eignum ríkisins, m.a. með bættri umgjörð um undirbúning og ákvarðanir um stærri fram­kvæmdir og fjárfestingar ríkisins. 

Tækifæri felast í betri nýtingu gagna og upplýsinga um ríkisfjármál, innkaup og mannauð sem og skýrari framsetningu helstu frammistöðumælikvarða til að bæta ákvarðanatöku og eftir­fylgni og auka gagnsæi.

Forgangsmál er að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir. Margar sameiningar eru í burðarliðnum með það að markmiði að bæta þjónustu við notendur og hagræða í rekstri. Mikilvægt er að fylgjast með árangri sameininga og mun fjármála- og efnahagsráðuneytið gefa út handbók um sameiningar stofnana sem tól til að sameiningar séu farsælar gagnvart bæði notendum og mannauði. Stofnanir ráðuneytisins sem veita miðlæga þjónustu, Fjársýslan, FSRE og Umbra, eru lykilstofnanir þegar kemur að breytingum á stofnanakerfinu. Til þess að meta árangur í starfsemi þeirra verður unnið stöðumat á þjónustunni og mat á hvernig þróa megi starfsemina til framtíðar þannig að hún uppfylli kröfur um skilvirka og hagkvæma þjón­ustu við ríkiskerfið.

Innleiðing nýrrar stefnu ríkisins í mannauðsmálum eykur stuðning við stjórnendur stofnana og mannauðsfólk. Rekstur ríkisstofnana er dreifstýrður og skráning fjarveru vegna veikinda ríkisstarfsfólks er ekki miðlæg heldur á ábyrgð hverrar stofnunar fyrir sig. Í aðgerðaáætlun sem fylgir stefnu ríkisins í mannauðsmálum er gert ráð fyrir að unnið verði að leiðbeinandi við­miðum og skilgreiningum fyrir stofnanir um viðveru og fjarveru.

Á árinu verður stefna um opinbera þjónustu gefin út með það að markmiði að bæta þjónustu, gera hana aðgengilegri og hagkvæmari. Stefnan mun ná til starfsemi ríkis og sveitarfélaga og marka mikilvægt skref til þess að samræma þjónustu, auka stafræna þjónustu en jafnframt bæta þjónustu fyrir þau sem ekki kjósa eða geta nýtt sér hana með stafrænum hætti. Með stefnunni er þannig verið að mæta þörfum alls samfélagsins og auka skilvirkni. Nánar er fjallað um fyrirhugaðar umbætur í starfsemi ríkisins í kafla 3.5 í almennri greinargerð fjármálaáætlunar.

Helstu breytingar á fjármögnun málefnasviðsins

Gert er ráð fyrir að fjárheimildir málefnasviðsins lækki um 250 m.kr. frá fjárlögum 2026 og til áætlunar 2031. Helstu breytingar eru þær að fjárheimild lækkar um 1.229 ma.kr. vegna almennrar aðhaldskröfu á tímabili áætlunarinnar og 198 m.kr. vegna sértækra aðhaldsráð­stafana. Heimildir vegna lögbundinna verkefna hækka um 390 m.kr., mest vegna endur­skoðunar á áætluðu umfangi dómkrafna. Fjárheimild málefnasviðsins hækkar um 400 m.kr. í tengslum við endurnýjun á samningi um Microsoft-hugbúnaðarleyfi. Þá eru gerðar leiðrétt­ingar á rekstrarumfangi sem fjármagnað er með rekstrartekjum en þær leiða til 192 m.kr. hækk­unar á ramma málefnasviðsins á áætlunartímanum. Þær breytingar hafa ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs þar sem þær hafa samsvarandi áhrif á tekjuhlið. Aðrar helstu breytingar eru 60 m.kr. vegna flutnings verkefna af málefnasviði 06 Hagsýslugerð og grunnskrár og verkefna sem hafði verið frestað í fyrri fjármálaáætlun.

Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.

Útgjaldarammi í m.kr.