13 Sjávarútvegur og fiskeldi

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð atvinnuvegaráðherra. Það skiptist í tvo mála­flokka sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og málefnasviðsins í heild á tímabilinu 2024–2026.

Heildarútgjöld í m.kr.

Helstu áherslur 2027–2031

Sjálfbær auðlindanýting og verðmætasköpun í sjávarútvegi og lagareldi

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Sjávarútvegur og lagareldi á Íslandi eru í fremstu röð og eru samkeppnishæf á alþjóða­vettvangi. Framleiðsla byggist á sjálfbærri auðlindanýtingu, hámarksnýtingu afurða, aukinni framleiðni og hefur vistkerfisnálgun að leiðarljósi. Atvinnugreinarnar styðja við byggð í land­inu og uppbyggingu þekkingar í samfélaginu. Gjöld af nýtingu auðlinda renna að hluta til þeirra samfélaga þar sem verðmætin eru sköpuð.

Meginmarkmið málefnasviðsins er að auka framleiðni greinanna á sjálfbæran hátt sem eykur samkeppnishæfni þeirra á alþjóðavettvangi og skapar verðmæt störf um land allt.

Stefna málefnasviðsins

Sjávarútvegur býr við mikla alþjóðlega samkeppni og því þarf að búa greininni sam­keppnishæft umhverfi og stuðla þar með að styrkingu íslensks atvinnulífs og samfélags. Öflugar hafrannsóknir og eftirlit með sjávarauðlindinni eru þar lykilatriði. Fylgjast þarf vel með markaðsaðstæðum og fylgja eftir vottunum íslenskra sjávarafurða til að tryggja sam­keppnishæfni á alþjóðavettvangi. Íslensk stjórnvöld eru virk í alþjóðasamstarfi þar sem reglur um nýtingu auðlinda hafsins eru mótaðar hjá alþjóðastofnunum. Breytingar í hafi vegna loftslagsbreytinga eru háðar verulegri óvissu, m.a. hvað varðar áhrif súrnunar á vistkerfi og þar með lífríki. Mikilvægt er að vöktun í hafi beinist að því að fylgjast með þessum breytingum. Greina þarf helstu áhættu vegna þessara breytinga og móta aðlögunaráætlun vegna haftengdrar starfsemi.

Í ljósi framangreindra áskorana verður lögð áhersla á að viðhalda stuðningi við sjávarútveg með öflugum rannsóknum, eftirliti og þátttöku í erlendu samstarfi. Þá verður ýtt undir orku­skipti og stutt við nýsköpun til að styðja við samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda vegna sjávarútvegs og til að auka framleiðni.

Nýlega var lagt fram heildstætt frumvarp til laga um lagareldi. Markmið frumvarpsins er að skapa lagareldi á Íslandi skýran lagaramma og ýta undir vöxt og verðmætasköpun greinar­innar með sjálfbæra nýtingu að leiðarljósi. Verður í þeim efnum m.a. litið til innleiðingar á hvötum til eldis á ófrjóum laxi og eldis í lokuðum kvíum til að sporna við neikvæðum áhrifum á lífríki.

Með aukinni áherslu á sjálfbært eldi, tækniþróun, bætta dýravelferð og nauðsynlegt eftirlit mun Ísland skipa sér í fremstu röð.

Helstu breytingar á fjármögnun málefnasviðsins

Gert er ráð fyrir að útgjaldarammi málefnasviðsins lækki um 1.059 m.kr. frá fjárlögum 2026 til ársins 2031. Helstu breytingar á fjárheimildum á tímabilinu snúa annars vegar að 200 m.kr. tímabundnu framlagi til kortlagningar hafsbotnsins sem fellur niður frá og með 2030. Hins vegar er gert ráð fyrir áframhaldandi aukningu framlaga í Fiskeldissjóð og er miðað við að framlagið verði komið í 649 m.kr. frá og með 2028. Aðrar helstu breytingar á fjárheimildum málefnasviðsins snúa að almennri og sértækri aðhaldskröfu að fjárhæð 862 m.kr. og breyt­ingum á tekjuáætlun ríkisaðila.

Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.

Útgjaldarammi í m.kr.