14 Ferðaþjónusta

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð atvinnuvegaráðherra. Undir málefnasviðinu er einn málaflokkur sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og mál­efna­sviðsins í heild á tímabilinu 2027–2031.

Heildarútgjöld í m.kr.

Helstu áherslur 2027–2031

Markviss verðmætasköpun

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu er að vera leiðandi í sjálfbærri þróun á grunni jafn­vægis á milli efnahags-, umhverfis- og samfélagslegra þátta. Í því felst að ferðaþjónustan sé arðsöm og samkeppnishæf og starfi í sátt við bæði land og þjóð. Framtíðarsýnin innifelur að íslensk ferðaþjónusta stuðli að bættum lífskjörum og hagsæld, að hún sé þekkt fyrir gæði og einstaka upplifun og sé ein af grundvallarstoðum íslensks efnahagslífs.

Stefna málefnasviðsins

Ferðaþjónusta er ein stærsta útflutningsgrein landsins og mikilvæg fyrir hagvöxt, gjald­eyristekjur og atvinnu um land allt. Tekjur af erlendum ferðamönnum námu 239,6 ma.kr. á þriðja ársfjórðungi 2025 samanborið við 239,2 ma.kr. á sama tímabili árið áður, sem endur­speglar áfram sterka stöðu greinarinnar þrátt fyrir aukna óvissu í alþjóðlegu efnahagsumhverfi. Alþjóðlegar spár gera ráð fyrir áframhaldandi fjölgun ferðamanna á heimsvísu um 3–4% á ári á næstu misserum.

Spár Ferðamálastofu gera ráð fyrir áframhaldandi fjölgun í komum erlendra ferðamanna á næstu árum. Gert er ráð fyrir 5,5% fjölgun árið 2026 miðað við árið 2025 og að fjöldi ferða­manna verði um 2,4 milljónir það ár. Spáin gerir jafnframt ráð fyrir frekari fjölgun í um 2,5 milljónir árið 2027 og 2,6 milljónir árið 2028. Horfur eru því áfram góðar fyrir ferðaþjónustu og þá verðmætasköpun sem á henni byggir enda hefur umfang og tekjugrunnur greinarinnar styrkst á undanförnum árum. Árið 2025 kom metfjöldi farþega með skemmtiferðaskipum til landsins, eða um 333.000 farþegar. Flest skipin komu á tímabilinu júní til september og má gera ráð fyrir að hvert skip hafi að jafnaði viðkomu í þremur til fjórum höfnum á ferð sinni um landið. Spár gera ráð fyrir að farþegar með skemmtiferðaskipum verði um 300.000. Spár gera ráð fyrir um 287.000 farþegum árið 2027.

Íslensk ferðaþjónusta stendur frammi fyrir margvíslegum áskorunum. Alþjóðleg spenna, stríðsátök og pólitísk og efnahagsleg óvissa hafa áhrif á eftirspurn frá erlendum mörkuðum. Jafnframt hefur efnahagslegt umhverfi hér á landi, m.a. hátt vaxtastig, verðbólga og sterkt gengi krónunnar, áhrif á samkeppnishæfni greinarinnar. Ójöfn dreifing ferðamanna um landið samhliða árstíðasveiflu veldur ójöfnu álagi á náttúru, samfélög og innviði og hefur áhrif á rekstrarskilyrði fyrirtækja. Aðrar áskoranir felast m.a. í viðvarandi náttúruvá og breytingum á flugframboði sem valda óvissu og draga úr fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi greinarinnar.

Í ljósi þessa leggja stjórnvöld áherslu á að skapa ferðaþjónustunni skýran og fyrirsjáanlegan ramma til lengri tíma og styrkja þannig rekstrarumhverfi og samkeppnishæfni greinarinnar. Á tímabili fjármálaáætlunar verður unnið að heildstæðri laga- og stjórnsýsluumgjörð ferða­þjónustu, þar á meðal um skipulag og öryggi á ferðamannastöðum, opinbera markaðssetningu, bætta gagnaöflun og rannsóknir og umgjörð um náttúru- og innviðagjald. Jafnframt verður unnið að dreifingu ferðamanna um landið, m.a. með stuðningi við aukið millilandaflug um aðra flugvelli en Keflavík og markvissri uppbyggingu innviða eins og kveðið er á um í ferða­málastefnu til 2030.

Helstu breytingar á fjármögnun málefnasviðsins

Gert er ráð fyrir að útgjaldarammi málefnasviðsins lækki um 197 m.kr. frá fjárlögum 2026 til ársins 2031. Helsta breytingin á fjárheimildum snýr að niðurfellingu á 100 m.kr. tímabundnu framlagi til Flugþróunarsjóðs sem veitt var í fjárlögum 2026 til eins árs. Aðrar breytingar á fjárheimildum málefnasviðsins snúa að almennri og sértækri aðhaldskröfu að fjárhæð 144 m.kr. ásamt uppfærslu á tekjuáætlun ríkisaðila.

Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.

Útgjaldarammi í m.kr.