16 Markaðseftirlit og neytendamál
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra. Undir málefnasviðinu er einn málaflokkur sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og málefnasviðsins í heild á tímabilinu 2024–2026.
Helstu áherslur 2027–2031
Framtíðarsýn og meginmarkmið
Framtíðarsýn stjórnvalda er skilvirk efnahagsstarfsemi og velferð á grunni stöðugleika, virkrar samkeppni, gagnsæis og heilbrigðra viðskiptahátta. Meginmarkmið er alþjóðleg samkeppnishæfni atvinnulífs sem byggist á efnahagslegu, umhverfislegu og samfélagslegu jafnvægi.
Virkt markaðseftirlit styður markmið um góða atvinnu og hagvöxt, ábyrga neyslu og framleiðslu, nýsköpun og jöfnuð og framþróun á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þau styðja jafnframt við heimsmarkmið um að reglusetning og eftirlit með alþjóðlegum fjármálamörkuðum og fjármálastofnunum verði bætt og beiting slíkra reglna efld og um að þróaðar verði skilvirkar og ábyrgar stofnanir á öllum sviðum sem hafi gagnsæi að leiðarljósi.
Stefna málefnasviðsins
Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar verður lögð áhersla á sterkt samkeppniseftirlit, öfluga neytendavernd og hagstæð rekstrarskilyrði fyrirtækja. Ríkisstjórnin hyggst jafnframt auka skilvirkni í samskiptum fyrirtækja og hins opinbera.
Skilvirkni í eftirliti með samkeppni og starfsháttum fyrirtækja og traust umgjörð samkeppnismála er mikilvægur þáttur í að tryggja að ábati samkeppninnar skili sér til neytenda.
Á sviði neytendamála er unnið að því að mæta ýmsum áskorunum í málaflokknum með heildarstefnumótun. Snýr sú vinna að nokkrum þáttum sem koma fram í þingsályktun um stefnu í neytendamálum til 2030 sem samþykkt var á 157. löggjafarþingi. Þar er mörkuð sú framtíðarsýn að á Íslandi verði traust umgjörð neytendamála sem stuðli að virkri samkeppni og veiti neytendum vernd og nauðsynlegar upplýsingar til að geta tekið upplýstar ákvarðanir um leið og óréttmætum viðskiptaháttum er mætt af festu. Þessari framtíðarsýn verður fylgt eftir með ýmsum aðgerðum sem koma fram í framangreindri þingsályktun.
Á sviði fjármálaeftirlits verður lögð áhersla á að draga úr flækjustigi og bæta upplýsingagjöf til eftirlitsskyldra aðila í því skyni að auka gagnsæi og fyrirsjáanleika í störfum Fjármálaeftirlitsins.
Helstu breytingar á fjármögnun málefnasviðsins
Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.