28 Málefni aldraðra
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og málefnasviðsins í heild á tímabilinu 2024–2026.
Helstu áherslur 2027–2031
Framtíðarsýn og meginmarkmið
Á Íslandi á að vera gott að eldast. Eldra fólki á að líða vel, það á að búa við afkomuöryggi og njóta framúrskarandi velferðarþjónustu.
Eldra fólk á að geta framfleytt sér með tekjum sínum. Geti það ekki gert það á öflugt velferðarkerfi að grípa það. Allar greiðslur, þjónusta og stuðningur eiga að tryggja að öldruðum sé gert kleift að lifa með reisn. Þjónustan á að taka mið af því að fólk sé stutt til sjálfsbjargar og sjálfstæðrar búsetu heima sem lengst – og rétt þjónusta skal veitt á réttum tíma og með réttu þjónustustigi.
Umfram allt á eldra fólk að búa við öryggi og vellíðan.
Stefna málefnasviðsins
Málefni aldraðra falla undir nokkur málefnasvið. Stoðir öldrunarþjónustu um land allt verða styrktar, ráðist í þjóðarátak í þjónustu við eldra fólk, embætti hagsmunafulltrúa eldra fólks komið á fót og hjúkrunarrýmum fjölgað. Undir málefnasviðið heyra greiðslur til eldra fólks og þar er stefnan skýr.
Kjaragliðnun launa og ellilífeyris verður stöðvuð. Gert er ráð fyrir að ellilífeyrir muni frá og með árinu 2027 fylgja þróun launavísitölu í stað þess að taka mið af almennri launaþróun. Þannig er tryggt að greiðslur almannatrygginga dragist ekki aftur úr í samanburði við almenna þróun lífskjara. Hækki verðlag meira en launavísitala mun ellilífeyrir hækka til samræmis við verðlag. Þessi aðgerð, ásamt áherslu á að draga úr vægi tekjutenginga með hækkun almenns frítekjumarks, vegur þungt í baráttunni gegn fátækt og fyrir betri kjörum eldra fólks.
Þjóðin er að eldast og það eitt og sér felur í sér margvíslegar áskoranir, hvort sem um það er að ræða að tryggja öllum framfærslu eða þjónustu. Í skýrslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum, er að finna ítarlegri umfjöllun en þar segir að fólki sem er 80 ára og eldra muni fjölga úr 15.000 í 39.000 á næstu þremur áratugum.
Áskorun er falin í því að ná að stuðla að heilbrigðri öldrun hjá hópi sem stækkar stöðugt enda má með hækkandi aldri gera ráð fyrir fjölgun í hópi þeirra sem glíma við aldurstengda sjúkdóma. Tækifæri eru hins vegar fólgin í að nýta betur fjölbreytta velferðartækni, stuðla að aukinni virkni og þátttöku fólks og veita heildstæða og samþætta þjónustu í heimahús, með auknum sveigjanleika í þjónustu, s.s. varðandi dagdvöl, kvöld- og helgarþjónustu.
Sóknarfæri eru fólgin í því að tryggja að eldra fólk geti framfleytt sér, fengið samþætta og heildstæða þjónustu, búið sem lengst á eigin heimili og lifað sjálfstæðu lífi.
Helstu breytingar á fjármögnun málefnasviðsins
Fjárveitingar málefnasviðsins hækka um 23,9 ma.kr. á tímabili fjármálaáætlunar. Helstu breytingar eru að gert er ráð fyrir 4 ma.kr. hækkun vegna hækkunar á almennu frítekjumarki ellilífeyris í 60.000 kr. á mánuði og 19,9 ma.kr. vegna 3% kerfislægs vaxtar vegna fjölgunar aldraðra.
Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.