31 Húsnæðis- og skipulagsmál
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og málefnasviðsins í heild á tímabilinu 2024–2026.
Helstu áherslur 2027–2031
Framtíðarsýn og meginmarkmið
Stöðugleiki ríki á húsnæðismarkaði þar sem fjölbreytt framboð íbúða mæti þörf í jafnvægi við umhverfið. Öllum sé tryggt öruggt og gott húsnæði og húsnæðiskostnaður sé viðráðanlegur. Hugað er að velsæld samfélags og gæðum í hinu byggða umhverfi og landnýting og skipulag byggða landsins hvetji til sjálfbærni í daglegu lífi og tryggi aðgengi að grunnþjónustu og fjölbreyttum atvinnutækifærum.
Stefna málefnasviðsins
Í gildi er langtímastefnumótun fyrir húsnæðis- og skipulagsmál. Alþingi hefur samþykkt þingsályktun um húsnæðisstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028. Unnið er að endurskoðun stefnunnar en ríkisstjórnin kynnti sinn fyrsta húsnæðispakka í október 2025 og hefur boðað að annar húsnæðispakki verði kynntur á fyrri hluta árs 2026. Þá hefur þingið samþykkt landsskipulagsstefnu fyrir árin 2024–2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028. Stefnurnar eru samhæfðar við aðrar opinberar áætlanir eftir því sem við á.
Stærsta áskorun samfélagsins í húsnæðismálum á komandi árum snýr að því að tryggja að framboð af fjölbreyttu húsnæði sé í takt við þörf til að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði og sé jafnframt í jafnvægi við umhverfið. Til að auka stöðugleika á húsnæðismarkaði mun ríkisstjórnin ráðast í aðgerðir í húsnæðismálum þar sem áhersla verður lögð á að liðka fyrir íbúðauppbyggingu, þar á meðal íbúðum með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði, og auka húsnæðisöryggi fólks. Í því sambandi er horft til aðgerða til skemmri og lengri tíma. Má þar nefna endurskoðun rammasamnings ríkis og sveitarfélaga um íbúðauppbyggingu. Enn fremur er stefnt á að ráðstafa ríkislóðum og ríkiseignum sem henta til íbúðauppbyggingar. Huga þarf sérstaklega að áskorunum á landsbyggðinni með sérhæfðum lausnum. Til að stuðla að auknu framboði hagkvæmra íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði verða samningar gerðir við byggingaraðila um byggingu hlutdeildarlánaíbúða. Jafnframt verður stutt við uppbyggingu almennra íbúða með hærri stofnframlögum ríkisins og með aðgerðum til að tryggja hentugar lóðir undir almennar íbúðir.
Með auknu húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum er félagslegur jöfnuður aukinn. Helstu verkfæri stjórnvalda í þeim efnum eru húsnæðisstuðningskerfi hins opinbera og skýr stefna í húsnæðismálum. Í þessu skyni þarf með sérstökum aðgerðum að styðja við þau sem standa höllum fæti á húsnæðismarkaði, þ.e. tekju- og eignalægri einstaklinga og fjölskyldur, fyrstu kaupendur og heimili með þunga framfærslubyrði. Með því má skapa skilyrði til að allir hafi aðgengi að góðu og öruggu húsnæði með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði sem hentar mismunandi þörfum.
Ríkisstjórnin mun áfram vinna að því að gera húsnæðisstuðning hins opinbera markvissari, m.a. með fyrrnefndum samningum um uppbyggingu hlutdeildarlánaíbúða og heildarendurskoðun á almenna íbúðakerfinu samhliða hærri stofnframlögum ríkisins. Fjölgun almennra íbúða eykur húsnæðisöryggi leigjenda og dregur úr þrýstingi á leiguverð. Á sama tíma verður ráðist í frekari aðgerðir til að styrkja stöðu leigjenda með auknum stuðningi við Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna og markvissu kynningarátaki um réttindi og réttarúrræði leigjenda. Jafnframt verður kærunefnd húsamála efld til að tryggja stuttan málsmeðferðartíma og veita leigjendum virkt réttarúrræði til úrlausnar á ágreiningi við leigusala. Þá verður innleidd stefna á landsvísu um málefni þeirra sem búa við heimilisleysi eða aðrar óviðunandi húsnæðisaðstæður á grundvelli hugmyndafræðinnar um húsnæði fyrst. Jafnframt verður unnið að úrbótum í húsnæðismálum fatlaðs fólks og aldraðra. Þá verða enn fremur stigin skref til að minnka vægi verðtryggingar húsnæðislána.
Ríkisstjórnin ætlar einnig að ráðast í kerfisbreytingar til að einfalda regluverk og stjórnsýsluferla, tryggja greinargóðar upplýsingar um húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmál og vinna áfram að gæðum, öryggi og rekjanleika í mannvirkjagerð. Enn fremur verður ráðist í mikilvægar kerfisbreytingar til að auka réttarvernd neytenda vegna fasteignagalla.
Helstu áskoranir á sviði skipulagsmála lúta annars vegar að þörf fyrir aukna skilvirkni við undirbúning skipulags og húsnæðisuppbyggingar og hins vegar að bættu aðgengi að samræmdum og áreiðanlegum upplýsingum um stöðu og þróun skipulagsmála. Þar undir falla m.a. upplýsingar um uppbyggingarheimildir á grunni skipulags, landnýtingu í dreifbýli og á miðhálendi Íslands, sem og eftirfylgni og árangur við innleiðingu áherslna landsskipulagsstefnu 2024–2038.
Tækifæri felast í því að efla yfirsýn og samræmda upplýsingagjöf um stöðu og þróun skipulagsheimilda sem styrkir stefnumótun og stuðlar að skilvirkari stjórnsýslu. Slík yfirsýn skapar betri grundvöll fyrir upplýsta ákvarðanatöku um nýtingu haf- og strandsvæða, uppbyggingu og viðhald þjóðhagslega mikilvægra innviða og að uppbygging ferðaþjónustumannvirkja verði innan þolmarka hálendisins. Í því samhengi er lögð áhersla á að hefja vinnu við gerð strandsvæðisskipulags fyrir Eyjafjörð og Skjálfanda.
Allt miðar ofangreint að því að tryggja að uppbygging húsnæðis og skipulag framtíðarinnar hafi þarfir fólks að leiðarljósi og sé þannig að manngert umhverfi og umhverfið í kring mætist á ábyrgan hátt.
Helstu breytingar á fjármögnun málefnasviðsins
Helstu breytingar á útgjaldaramma á tímabilinu 2027–2031 fela í sér að tímabundin aukning á stofnframlögum fellur niður á árinu 2028 og er gert ráð fyrir að stofnframlög til uppbyggingar almennra íbúða nemi 3,6 ma.kr. á ári 2028–2031.
Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.