33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og mál­efnasviðsins í heild á tímabilinu 2023–2025.

Heildarútgjöld í m.kr.

Helstu áherslur 2027–2031

Treysta sjálfbærni ríkisfjármála

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Framtíðarsýn málefnasviðsins er að lágmarka fjármagnskostnað með tilliti til áhættu í rekstri og efnahag ríkissjóðs. Einnig skal stuðla að fyrirsjáanleika í ríkisfjármálum og bæta þannig ásýnd Íslands í alþjóðlegum samanburði. Meginmarkmið málefnasviðsins er hagkvæm nýting á fjármagni ríkissjóðs til þess að bæta afkomu og skapa útgjaldasvigrúm til annarra málaflokka.

Stefna málefnasviðsins

Skuldir A1-hluta ríkissjóðs námu 2.263 ma.kr. í árslok 2025 (46% af VLF). Á næstu fimm árum er útlit fyrir að fjármagnskostnaður ríkissjóðs verði í kringum 8,7% af útgjöldum. Það eru því mikilvægir hagsmunir ríkissjóðs að lágmarka fjármagnskostnað til lengri tíma m.t.t. áhættu og rýma fyrir skuldaniðurgreiðslu, lækkun skatta eða öðrum útgjöldum.

Útistandandi ríkisábyrgðir tóku stakkaskiptum á árinu 2025 eftir uppgjör ÍL-sjóðs og lækkuðu úr 740 ma.kr. (15% af VLF) í janúar 2025 í 91 ma.kr. (1,7% af VLF) í janúar 2026. Stefna stjórnvalda er að draga úr ríkisábyrgðum eins og kostur er næstu árin og veita hvorki nýjar né endurnýja eldri ábyrgðir sem eru komnar á gjalddaga. Með bættu eftirliti með ríkisábyrgðum og endurlánum og eflingu áhættustýringar ríkissjóðs er unnt að draga úr áhættu ríkissjóðs til framtíðar.

Ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar hækkuðu um 4 ma.kr. á milli áranna 2023 og 2024, úr 929 ma.kr. í 933 ma.kr. Gjaldfærsla vegna lífeyrisskuldbindinga er háð mörgum breytum, t.d. launahækkunum, verðlagsbreytingum, ávöxtun eigna og tryggingafræðilegum forsendum. Stefnt er að lágmörkun ófjármagnaðra lífeyrisskuldbindinga ríkissjóðs með lágmarkskostnaði m.t.t. til áætlana um niðurgreiðslu skulda ríkissjóðs. Með nýtingu eigna til uppgreiðslu skuldbindinga og skulda ríkissjóðs er efnahagur ríkissjóðs minnkaður og dregið úr áhættu ríkissjóðs. Það er líklegt til að hafa jákvæð áhrif á afkomu ríkissjóðs til langs tíma, lánshæfismat og þar með lánskjör.

Helstu breytingar á fjármögnun málefnasviðsins

Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.

Útgjaldarammi í m.kr.