35 Alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands

Starfsemi á málefnasviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands er á ábyrgð utanríkis­ráðherra. Undir málefnasviðinu er einn málaflokkur sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjár­hagslegri þróun á tímabilinu 2024–2026.

Heildarútgjöld í m.kr.

Helstu áherslur 2027–2031

Velsæld og sjálfbær þróun

Framtíðarsýn og meginmarkmið

Ísland deilir framtíðarsýn heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra veröld þar sem hungri og sárafátækt hefur verið útrýmt, dregið hefur úr ójöfnuði innan og á milli ríkja, mannréttindi eru virt og öll eru jöfn fyrir lögum og lifa við frið og öryggi í daglegu lífi. Megin­markmið alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Íslands eru útrýming fátæktar, virðing fyrir mann­réttindum og bætt lífsskilyrði.

Stefna málefnasviðsins

Alþingi samþykkti stefnu stjórnvalda um markmið og áherslur Íslands í þróunarsamvinnu 2024–2028 og veita aðgerðaáætlun og stefnumið frekari ramma um starfið. Lögð er áhersla á fjóra málaflokka: mannréttindi og jafnrétti kynjanna, mannauð og grunnstoðir samfélaga, lofts­lagsmál og náttúruauðlindir, og mannúðaraðstoð og störf í þágu stöðugleika og friðar, en mann­réttindi og jafnrétti kynjanna og umhverfis- og loftslagsmál eru bæði sértæk og þverlæg mark­mið sem þýðir að þau eru lögð til grundvallar í öllu starfi. Aðild að Sameinuðu þjóðunum, heimsmarkmið SÞ, Parísarsamkomulagið um aðgerðir til að takast á við og bregðast við lofts­lagsbreytingum og aðrir alþjóðlegir sáttmálar sem Ísland er aðili að varða veginn í stefnu stjórnvalda. Á sama tíma er tekið mið af þeim áskorunum sem fátækari ríki heims standa frammi fyrir, styrkleikum og sérþekkingu Íslands og þeim gildum sem íslenskt samfélag hefur í heiðri, t.a.m. mannréttindum, kynjajafnrétti og réttindum hinsegin fólks.

Fjölmargar áskoranir standa í vegi fyrir því að heimsmarkmið SÞ nái fram að ganga. Vax­andi ófriður og óstöðugleiki, þar á meðal í Evrópu, hefur kallað á aukinn stuðning framlags­ríkja, t.d. við Úkraínu, og komið illa niður á fátækum þjóðum. Afleiðingar loftslagsbreytinga og umhverfistengd áföll eru tíðari þar sem hamfarir, flóð og þurrkar valda efnahagsþrengingum og fæðuóöryggi en viðkvæmustu samfélögin búa ekki yfir viðnámsþrótti til að takast á við slíkt. Þessar áskoranir koma til viðbótar þeim víðtæku vandamálum sem fátækustu ríkin glíma við. Yfir milljarður býr nú við fátækt og skort, þar af er stærstur hluti börn, og í Afríku búa um 600 milljónir við orkufátækt. Veikir innviðir og takmörkuð atvinnutækifæri hafa aukið hættu á uppgangi öfgahópa og átaka og leitt til aukins fólksflótta. Allt þetta eykur þörf á neyðar- og mannúðaraðstoð og kallar á sársaukafullar ákvarðanir um forgangsröðun. Þá hefur orðið bak­slag í mannréttindabaráttu víðs vegar í heiminum, þar á meðal hvað varðar kyn- og frjósemis­réttindi og réttindi hinsegin fólks. Framlög til fátækustu ríkjanna hafa á sama tíma ekki aukist en stuðningur við Úkraínu og kostnaður innan framlagsríkja vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd hefur þess í stað farið vaxandi. Þá hefur stefna bandarískra stjórnvalda, sem hafa dregið seglin saman í þróunarsamvinnu, haft víðtækar afleiðingar fyrir fátækustu ríkin, en Bandaríkin voru stærsta framlagsríki heims. Mörg Evrópuríki hafa jafnframt dregið úr framlögum til þróunarsamvinnu og/eða breytt forgangsröðun þannig að stuðningur við fátækustu ríkin hefur dregist umtalsvert saman.

Íslensk stjórnvöld taka virkan þátt í alþjóðasamstarfi og beina fjárframlögum markvisst til verkefna, sjóða og stofnana sem miða að því að koma stefnu stjórnvalda til framkvæmdar. Þannig styður Ísland við uppbyggingu mannauðs og innviða í samstarfsríkjunum Malaví, Úganda og Síerra Leóne þar sem sérstök áhersla er lögð á aðgang að grunnmenntun, heil­brigðisþjónustu, hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu. Þá munu stjórnvöld leggja enn þyngri áherslu á mannréttindi, jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna á komandi árum þótt jafn­réttismálin hafi ávallt skipað stóran sess í þróunarsamvinnu Íslands. Er það bæði í ljósi þess að mannréttindi og jafnrétti kynjanna eru forsenda framfara á öllum sviðum og þess bakslags er hefur gætt á þessu sviði á undanförnum árum. Umhverfis- og loftslagsmál hafa jafnframt lengi verið mikilvægur þáttur í starfinu, en stefnt er að því að gefa enn frekar í á þeim vettvangi, styðja við bætta mótvægis- og aðlögunarhæfni samfélaga og taka virkan þátt í alþjóðlegri sam­vinnu þar að lútandi. Í ljósi vaxandi átaka og óstöðugleika verður mannúðaraðstoð áfram lykil­þáttur í starfinu og Miðausturlönd og Afríka sunnan Sahara skilgreind sem áherslusvæði til að leitast við að auka skilvirkni og áhrif stuðnings Íslands. Samstarf íslenskra stjórnvalda við fjöl­þjóðlegar stofnanir hefur verið eflt enda mikilvægt að standa vörð um það fjölþjóðlega kerfi sem við höfum komið okkur upp. Lögð er áhersla á sveigjanleg og fyrirsjáanleg framlög sem nýtast samstarfsaðilum best til að laga sig að stöðugt meira krefjandi aðstæðum og beina aðstoðinni þangað sem þörfin er mest. Nánar má lesa um stefnu Íslands á sviði alþjóðlegrar þróunarsamvinnu 2024–2028 á vef Alþingis ásamt frekari útlistun á verkefnum í aðgerða­áætlun 2024–2025

Þar sem framlög til mannúðar- og efnahagsaðstoðar við Úkraínu teljast til opinberrar þróun­araðstoðar falla þau undir málefnasviðið. Stuðningur Íslands við Úkraínu verður efldur og sem fyrr verður fyrst og fremst unnið með fjölþjóðlegum stofnunum og samtökum þar sem áhersla er lögð á þarfir úkraínsku þjóðarinnar og þau svið sem íslensk stjórnvöld leggja áherslu á í alþjóðlegri þróunarsamvinnu, s.s. uppbyggingu orkuinnviða.

Með hækkun framlaga má gera ráð fyrir auknum umsvifum í tvíhliða samstarfslöndum og verður samstarf við önnur ríki tekið til skoðunar á tímabili fjármálaáætlunar. Þá verður samstarf við fjölþjóðlegar áherslustofnanir eflt en t.a.m. hafa framlög til Alþjóðaframfarastofnunarinnar (IDA) aukist í kjölfar 21. endurfjármögnunar stofnunarinnar. Þá er sömuleiðis gert ráð fyrir auknum framlögum til verkefna sem ætlað er að mæta bakslagi í mannréttinda- og jafnréttis­málum. Aukið verkefnaumfang felur í sér þörf á fjölgun starfsfólks til að sinna umsýslu og viðhafa virkt eftirlit með tvíhliða og fjölþjóða starfi sem fjármagnað er af íslenska ríkinu, ásamt áframhaldandi uppbyggingu á sérfræðiþekkingu á sviði þróunarsamvinnu innan utanríkis­ráðuneytisins.­

Helstu breytingar á fjármögnun málefnasviðsins

Eins og undanfarin ár er gert ráð fyrir að framlög til þróunarsamvinnu fylgi þróun vergra þjóðartekna (VÞT). Miðað er við að árleg framlög til málefnasviðsins nemi 0,30% af VÞT á tímabili áætlunarinnar. Auk þessa teljast ýmis útgjöld sem falla undir önnur málefnasvið til opinberrar þróunaraðstoðar (ODA). Þar er helst að nefna hluta útgjalda vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd og stofnfjárframlög til fjölþjóðlegra þróunarbanka. Ef tekið er tillit til þeirra er gert ráð fyrir að heildarumfang opinberrar þróunaraðstoðar nemi 0,33% af VÞT á árinu 2027.

Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skipt­ingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.

Útgjaldarammi í m.kr.