Kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla
Skylt er að greftra lík í lögmætum kirkjugarði eða brenna þau í viðurkenndri bálstofu, eins og fram kemur í lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu. Heimilt er að afmarka óvígðan reit innan kirkjugarðssvæðis ef hlutaðeigandi kirkjugarðsstjórn samþykkir og eru í boði óvígðir reitir fyrir þá sem þess óska, m.a. á höfuðborgarsvæðinu.
Sýslumenn veita leyfi til líkbrennslu samkvæmt umsókn aðstandenda hins látna. Þá veitir Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra leyfi til dreifingar ösku utan kirkjugarðs eða yfir öræfi eða sjó, enda liggi fyrir ótvíræð ósk hins látna þar að lútandi, ásamt því að veita leyfi fyrir flutningi líks á milli grafreita.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, nr. 36/1993Tenglar
KirkjugarðaráðYfirlit yfir kirkjugarða á vef KirkjugarðaráðsUpplýsingar um látna einstaklinga, legstaði þeirra í kirkjugörðum o.flSýslumenn
Sýslumenn veita upplýsingar og ýmis leyfi og vottorð í tengslum við andlát.
Persónuréttur