Sanngirnisbætur
Lög um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum mæla fyrir um greiðslu sanngirnisbóta úr ríkissjóði til þeirra sem urðu fyrir varanlegum skaða af illri meðferð eða ofbeldi á stofnunum eða heimilum, samkvæmt nánari skilgreiningu laga.
Greiddar hafa verið sanngirnisbætur vegna vistunar á eftirfarandi heimilum eða stofnunum:
- Vistheimilið Breiðavík. Starfaði á árunum 1952-1979.
- Heyrnleysingjaskólinn. Á við starfstíma hans á árunum 1947-1992.
- Vistheimilið Kumbaravogur. Starfaði á árunum 1965-1984.
- Vistheimilið Reykjahlíð. Starfaði á árunum 1956-1972.
- Skólaheimilið Bjarg. Starfaði á árunum 1965-1967.
- Vistheimilið Silungapollur. Starfaði á árunum 1950-1969.
Sumarvistun á vegum RKÍ fellur ekki þarna undir. - Heimavistarskólinn að Jaðri. Starfaði á árunum 1946-1973.
- Upptökuheimili ríkisins. Starfaði í Elliðahvammi og í Kópavogi á árunum 1945-1971.
- Unglingaheimili ríkisins. Starfaði frá 1971-1994. Tók við af Upptökuheimilinu en breytti ekki formlega um nafn fyrr en árið 1978.
Starfsstöðvar voru: Kópavogsbraut 9 og 17, Sólheimar 7 og 17, Torfastaðir í Biskupstungum, Smáratún í Fljótshlíð, Efstasund 86 og Tindar á Kjalarnesi. - **Landakotsskóli.**Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar á Íslandi frá nóvember 2012.
- **Kópavogshæli.**Starfaði á árunum 1952-1993.
- **Stofnanir fyrir fötluð börn.**Starfandi til 1. febrúar 1993.
Vistheimilanefnd, samkvæmt lögum nr. 26/2007, kannað starfsemi ofangreindra heimila eða stofnana, að undanskildum Landakotsskóla og stofnanir fyrir fötluð börn, og skilað skýrslum þar að lútandi. Nefndin afmarkaði sjálf hvaða heimili skyldu sæta sérstakri könnun. Vistmenn á öllum heimilunum voru um 5000. Neðar á síðunni eru hlekkir á allar skýrslur nefndarinnar.
Þar sem lög nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum fyrir fötluð börn, eru fallin úr gildi þykir rétt að vekja athygli á því að erindi sem varða sanngirnisbætur má senda dómsmálaráðuneytinu.
Tengiliður vistheimila starfaði á grundvelli 10. gr. laga nr. 47/2010 um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum fyrir fötluð börn. Staða tengiliðar féll niður á sama tíma og lögin féllu brott, hinn 31. desember 2023.
Embætti sýslumanns á Norðurlandi eystra á Siglufirði annaðist þau verkefni sem sýslumanni voru falin samkvæmt lögum um sanngirnisbætur, svo sem að ákveða fjárhæð sáttaboða fyrir þá einstaklinga sem sóttu um sanngirnisbætur.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög, nr. 47/2010, um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á stofnunum eða heimilum sem falla undir lög nr. 26/2007Lög um skipan nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn, nr. 26/2007Verkefni sýslumanns
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra annast þau verkefni sem sýslumanni eru falin samkvæmt lögum um sanngirnisbætur. Sjá ítarlegar upplýsingar á Ísland.is.