Skaðabótaréttur

Löggjöf á sviði skaðabótaréttar er á ábyrgð dómsmálaráðuneytisins, sem heldur utan um nauðsynlegar lagabreytingar, skipar örorkunefnd og setur reglugerð um starfshætti hennar.

Örorkunefnd gefur álit um miska- eða örorkustig, í samræmi við skaðabótalög, og semur töflur um miskastig. Í nefndinni eiga sæti þrír fulltrúar sem eru skipaðir af ráðherra til sex ára í senn og skulu tveir nefndarmenn vera læknar og einn lögfræðingur og er hann formaður nefndarinnar.

Sjá einnig: