Persónuvernd
Persónuvernd lýtur að réttindum einstaklinga varðandi meðferð persónuupplýsinga þeirra. Þessi réttindi byggjast á rétti einstaklinga til friðhelgi einkalífs sem er heyrir til þeirra grundvallarmannréttinda sem eru vernduð í íslensku stjórnarskránni og öðrum mannréttindasáttmálum. Dómsmálaráðuneytið hefur yfirumsjón með málefnum sem varða persónuvernd, þ. á m. stefnumótun, innleiðingu og umsjón með regluverki.
Persónuvernd styður einnig við sameiginlega hagsmuni í lýðræðissamfélagi. Ef persónuvernd er tryggð geta einstaklingar skapað sér rými til skoðanaskipta og lýðræðislegrar þátttöku á hinum ýmsu sviðum samfélagsins án þess að eiga á hættu á að upplýsingar tengdar persónu þeirra verði dregnar fram og gerðar opinberar.
Persónuvernd er jafnframt lykilforsenda fyrir nýtingu á nútímatækni og fyrir því að einstaklingar geti fótað sig í hinum stafræna heimi. Hagsmunir tengdir persónuvernd eru því margvíslegir og snertifletir við aðra málaflokka ráðuneytanna eru ýmsir.
Regluverkið
Lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga er ætlað að stuðla að því að með persónuupplýsingar sé farið í samræmi við grundvallarsjónarmið og reglur um persónuvernd og friðhelgi einkalífs. Lögunum er einnig ætlað að tryggja áreiðanleika og gæði slíkra upplýsinga og frjálst flæði þeirra á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins (EES).
Íslensku persónuverndarlögin leiða í íslenskan rétt reglugerð Evrópusambandsins (ESB) um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga sem hefur verið tekin upp í EES-samninginn og er birt sem fylgiskjal með lögunum.
Lögum um vinnslu persónuupplýsinga í löggæslutilgangi er ætlað að stuðla að því að yfirvöld á sviði refsivörslu fari með persónuupplýsingar í samræmi við grundvallarsjónarmið og reglur um persónuvernd og friðhelgi einkalífs og að tryggja áreiðanleika og gæði slíkra upplýsinga, auk þess að greiða fyrir skilvirkum störfum og nauðsynlegri miðlun persónuupplýsinga þessara yfirvalda sín á milli og til annarra.
Persónuvernd er sjálfstæð stofnun sem fer með eftirlit með framkvæmd ofangreindra laga.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nr. 77/2000Ný persónuverndarlöggjöf 2018
Umfjöllun um nýja persónuverndarlöggjöf 2018Persónuvernd
Persónuvernd annast eftirlit með framkvæmd laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og reglna settra samkvæmt þeim.
Fréttir
Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið
30 desember 2020
Innviðaráðuneytið
Tilkynningagátt mikilvægt skref í baráttu gegn ógnum á netinu og misnotkun persónuupplýsinga
14 maí 2020
Dómsmálaráðuneytið
Persónuvernd barna í stafrænum heimi
09 október 2019
Persónuréttur