Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál

Stýrihópur Stjórnarráðsins um byggðamál hefur það hlutverk að efla samhæfingu innan Stjórnarráðsins í málefnum sem snúa að byggðamálum og trygga virkt samráð við sveitarstjórnarstigið í þeim málaflokki. Hópurinn er skipaður til þriggja ára í senn skv. 2. gr. laga um byggðaáætlun og sóknaráætlanir nr. 69/2015. Ráðherra byggðamála skipar í hópinn en í honum eru fulltrúar allra ráðuneyta og fulltrúi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Fulltrúi ráðherra byggðamála fer með formennsku í stýrihópnum.

Sjá nánari upplýsingar um stýrihópinn

Fundargerðir

Eldri fundargerðir

Fundargerðir stýrinets Stjórnarráðsins (forvera stýrihópsins) frá mars 2012 til apríl 2013.