Samstarf

Tilgangur nefndarinnar er að auka traust og formfestu í samskiptum ríkis og sveitarfélaga, bæta stjórnsýslu hins opinbera og efla gagnkvæman skilning á viðfangsefnum og þörfum hvors aðila fyrir sig. Nefndin skal fara yfir einstök mál sem vísað er til hennar og jafnframt skal nefndin taka sérstaklega upp á fundum sínum umræðu um með hvaða hætt er unnt að bæta verkferla og samskipti þessara stjórnsýslustiga, sbr. 6. mgr. 128. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011.

Núgildandi samstarfssáttmáli er frá 2. apríl 2008 og er hann ótímabundinn en með ákvæði um endurskoðun ef annar hvor aðili telur ástæðu til.

Hér eru birtar fundargerðir nefndarinnar núverandi og síðastliðins árs.

Evrópuráðið

Ráðuneyti sveitarstjórnarmála hefur tekið þátt í starfsemi á vegum Evrópuráðsins sem snýr að sveitarstjórnarmálum með setu í stýrinefndum sem meðal annars leggja áherslu á staðbundið lýðræði og íbúalýðræði.

Á leiðtogafundi Evrópuráðsins sem haldinn var í Reykjavík dagana 16.–17. maí 2023, samþykktu leiðtogar 46 aðildarríkja stofnunarinnar svonefndar Reykjavíkurreglur um lýðræði (Reykjavík Principles for Democracy). Þessi gildi voru hönnuð til að styrkja lýðræðislegar stoðir í álfunni.

Í kjölfarið var sett á laggirnar stýrinefnd um lýðræði (Steering Committee on Democracy - CDDEM). CDDEM starfar á grundvelli Reykjavíkurreglnanna og er vettvangur þar sem deilt er upplýsingum og reynslu af umbótaverkefnum og nýbreytni sem varða aukna möguleika íbúa til að taka þátt í og hafa áhrif á nærsamfélag sitt og stuðlar að jafningjamati á reynslu meðal aðildarríkja Evrópuráðsins. Nefndin mótar sameiginlegar lausnir, viðmið og hagnýt verkfæri til að styrkja lýðræði og góða stjórnsýslu á landsvísu, svæðisbundið og á sveitarstjórnarstigi. Sérstök áhersla er lögð á að efla raunverulega þátttöku í lýðræðislegu samfélagi, einkum meðal ungs fólks og minnihlutahópa.

Evrópuráðið hefur beint ýmsum tilmælum varðandi staðbundin stjórnvöld til aðildarríkja sinna. Tilmælin hafa sum hver verið höfð til hliðsjónar við lagasetningu hér á landi.

Nánari upplýsingar um starfsemi CDDEM má finna hér á vefsíðu EvrópuráðsinsEvrópusáttmáli um sjálfstjórn sveitarfélaga

Samband íslenskra sveitarfélaga tekur enn fremur þátt í sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins en það er ráðgefandi gagnvart ráðherranefnd og þingi Evrópuráðsins, sjá nánar á vef Sambandsins.

Norðurlöndin

Samstarf við önnur Norðurlönd hefur verið verið umtalsvert þótt ekki sé þar formlegur samstarfsvettvangur, til dæmis er ekki fjallað sérstaklega um sveitarstjórnarmál á vettvangi Norðurlandaráðs eða Norrænu ráðherranefndarinnar.

Um langt árabil hafa norrænir ráðherrar sveitarstjórnarmála árlega haldið sameiginlegan fund þar sem helstu verkefni landanna á sviði sveitarstjórnarmála hafa verið kynnt og rædd. Slíkur fundur var síðast haldinn hér á landi árið 2023.

Annað samstarf

Ráðuneytið tekur reglulega á móti erlendum sendinefndum sem vilja kynna sér málefni sveitarstjórnarstigsins hér á landi og hvernig samskiptum ríkis og sveitarfélaga er háttað.