Siðareglur og sveitarstjórnir

Sveitarstjórn skal setja sér siðareglur sem senda skal innviðaráðuneyti til staðfestingar.

Úr 29. gr. sveitarstjórnarlaga: Ef siðareglur eru í gildi skal ný sveitarstjórn meta hvort ástæða sé til endurskoðunar þeirra. Ef niðurstaðan er sú að siðareglur þarfnist ekki endurskoðunar halda þær gildi sínu. Tilkynna skal ráðuneytinu um þá niðurstöðu.
Siðareglur sveitarstjórnar skulu birtar opinberlega á vefsíðu sveitarfélagsins eða á sambærilegan hátt.
Öllum kjörnum fulltrúum í sveitarstjórn og nefndum og ráðum sem sveitarstjórn skipar ber að haga störfum sínum í samræmi við settar siðareglur.
Samband íslenskra sveitarfélaga skipar nefnd sem veitt getur álit um siðareglur og um ætluð brot á þeim. Ráðuneytið getur borið tillögur sveitarstjórna um siðareglur undir nefndina áður en það tekur þær til staðfestingar.

Samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga skulu þær birtar opinberlega á vefsíðu sveitarfélaga eða á annan sambærilegan hátt og vera þar aðgengilegar öllum. Siðareglur á grundvelli 29. gr. sveitarstjórnarlaga gilda hins vegar ekki um ráðna stjórnendur og aðra starfsmenn sveitarfélaga. Sveitarstjórn getur engu að síður sett siðareglur sem gilda um starfsmenn sveitarfélagsins en þær reglur hljóta ekki staðfestingu ráðuneytisins.

Siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur gefið út leiðbeiningar til sveitarstjórna um gerð siðareglna og hlutverk siðanefndar. Í leiðbeiningunum eru nýjar sveitarstjórnir minntar á skyldu þeirra skv. 29. gr. sveitarstjórnarlaga til að meta hvort ástæða er til að endurskoða siðareglur sveitarfélagsins og setja siðareglur hafi það ekki þegar verið gert. Jafnframt eru veittar leiðbeiningar um hvernig sé rétt að standa að skráningu siðareglna.

Yfirlit um sveitarfélög sem hafa samþykkt siðareglur og sent ráðuneytinu til staðfestingar (pdf 24. febr. 2021)Leiðbeiningar Sambands íslenskra sveitarfélaga um gerð siðareglna og hlutverk siðanefndar
Sjá einnig: