Fræðsluefni - námskeið
Grunnnámskeið
Almenn námskeið eru á myndbandsformi og er æskilegt að allir opinberir starfsmenn horfi á áður en gervigreindarlausnir eru notaðar. Hér er horft til opinna gervigreindarlausna sem keyra ekki á sérstökum leyfum.
Stofnanir sem eru með eigin fræðslukerfi geta óskað eftir efninu til sín. Ef stofnanir eru ekki með eigin fræðsluvef geta þær nálgast þau í gegnum Fjársýsluskólann með því að setja sig samband við Fjársýsluna.
Starfsmönnum er bent á að hafa samband við mannauðs- og fræðslustjóra sinnar stofnunar til að fá aðgang að þessum námskeiðum.
Fræðslumyndbönd.
- Kynning á námskeiðunum? (1 mín)
- Hvað er Copilot Chat? (6,5 mín)
- Öryggi og gögnin þín. (5 mín)
- Hvernig skrifum við góð fyrirmæli? (5 mín)
- Gagnrýnin notkun. (4 mín)
- Hagnýt notkun (9 mín)
- Copilot sem hluti af vinnuumhvefi (10.40)
Hlutverkamiðuð námskeið
Aðra og þriðju vikuna í nóvember hefjast svokölluð hlutverkamiðuð námskeið og eru ætluð ríkisstarfsmönnum sem eru þegar komin með Copilot í sitt vinnuumhverfi. Um er að ræða sex tegundir námskeiða sem fara fram í húsakynnum Starfsmenntar í Skipholti. Námskeiðin fara öll yfir ákveðna grunnnotkun Copilot ásamt því að rýna sérstaklega verkefni sem eru gagnleg hverju hlutverki fyrir sig. Hvert námskeið er um tveir tímar. Sem dæmi þá geta lögfræðingar þvert á kerfið skráð sig á námskeið ætlað lögfræðingum og fara þá á dýptina í þeim málaflokki o.s.frv.
Þau hlutverk sem verða tekin fyrir að þessu sinni eru ætluð:
- Fjármálasérfræðingum
- Kennurum
- Lögfræðingum
- Mannauðssérfræðingum
- Sérfræðingum
- Stjórnendum
Hlekkur á skráningu fyrir námskeiðin mun birtast á þessari síðu.