Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg 101 Reykjavík
Sími: 5458400
Kennitala: 550169-1269
Netfang: for[at]for.is
Afgreiðsla virka daga frá kl. 08:30 - 16:00
Forsætisráðuneytið hefur frá upphafi verið í Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg. Starfsemi á vegum ráðuneytisins fer nú einnig fram í nærliggjandi húsum að Hverfisgötu 4–6. Aðalskrifstofa forsætisráðuneytisins skiptist samkvæmt skipuriti í skrifstofu stjórnskipunar og stjórnsýslu, skrifstofu samhæfingar og stefnumála, skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála og skrifstofu innviða og þróunar.
Forsætisráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Þær stofnanir sem heyra undir ráðuneytið eru Seðlabanki Íslands, Ríkislögmaður, Hagstofa Íslands, Umboðsmaður barna og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þau varða stjórnskipan lýðveldisins Íslands og Stjórnarráðið í heild, málefni ríkisstjórnar og ráðherranefnda, málefni ríkisráðs, þjóðhagsmál, löggjafarmálefni, stjórnarfar almennt, þjóðartákn, mannréttindamál, jafnréttismál og fleira. Forsætisráðuneytið fer auk þess með ýmis málefni og tilfallandi verkefni er tengjast stöðu og störfum forsætisráðherra sem oddvita ríkisstjórnarinnar og samræmingu og samráð er lýtur að samstarfi ráðuneyta á ýmsum sviðum.
Forsætisráðherra stýrir ríkisstjórnarfundum enda er hann skv. 17. gr. stjórnarskrár „sá ráðherra, er forseti lýðveldisins hefur kvatt til forsætis“. Hann fer einnig með forsetavald í fjarveru forseta Íslands, ásamt forseta Alþingis og forseta Hæstaréttar. Ráðherranefndir starfa undir forystu forsætisráðherra, auk þess sem ýmsar aðrar nefndir, verkefnishópar og ráð heyra undir ráðuneytið.
Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg 101 Reykjavík
Sími: 5458400
Kennitala: 550169-1269
Netfang: for[at]for.is
Afgreiðsla virka daga frá kl. 08:30 - 16:00
Forsætisráðuneytið