Skýrsla um embættismannakerfið
Starfshópur um hlutverk og starfsskilyrði embættismanna skilaði í október 2025 forsætisráðherra skýrslu sinni. Í skýrslunni gerir starfshópurinn tillögur að breytingum sem ætlað er að stuðla að auknu sjálfstæði, hreyfanleika og hæfni embættismanna og þar með trausti til stjórnsýslunnar.
Í skýrslunni er fjallað um þróun embættismannakerfisins á Íslandi, samspil kerfisins og hinnar pólitísku stoðar og helstu áskoranir í opinberri stjórnsýslu. Þá er gerður samanburður á embættismannakerfinu á Íslandi og í átta völdum samanburðarlöndum.
Helstu tillögur starfshópsins eru:
1. Settar verði sérstakar reglur um þá embættismenn sem starfa í mestri nálægð við pólitíska valdhafa (P-flokkur). Er þar um að ræða ráðuneytisstjóra, skrifstofustjóra í ráðuneytum og forstöðumenn stofnana ríkisins, samkvæmt nánari afmörkun.
2. Valferli embættismanna í P-flokki verði styrkt á eftirfarandi hátt:
- Ráðherra fari ekki lengur einn með val á ráðgefandi hæfnisnefndum.
- Skipun embættismanna, flutningur og ákvarðanir um starfslok verði teknar fyrir í ríkisstjórn eða ráðherranefnd.
- Í þeim tilgangi að fjölga umsóknum hæfra umsækjenda um embætti verði lögfestur möguleiki á að óska nafnleyndar.
- Í stað fyrirvaralausrar heimildar ráðherra til að flytja embættismenn milli embætta með og án þeirra samþykkis komi heimild til flutnings sem byggir á sjónarmiðum um hreyfanleika, hæfni, þarfir stofnunar og öðrum málefnalegum sjónarmiðum.
3. Skipunartími embættismanna í P-flokki verði lengdur úr fimm í sjö ár. Að þeim tíma liðnum verði embætti auglýst. Sæki embættismaður ekki um eða verði ekki hlutskarpastur bjóðist honum að jafnaði hefðbundinn ráðningarsamningur sem sérfræðingur. Kveðið verði á um hámarkstíma í sama embætti, sem verði 14 ár.
4. Ráðgjöf og samræming um málefni embættismanna í P-flokki verði falin miðlægri skrifstofu eða einingu innan stjórnkerfisins.
5. Starfi aðstoðarmanna ráðherra verði sett þau mörk að þeir láti af störfum þegar boðað hefur verið til kosninga eða þegar 2-3 mánuðir eru til reglulegra þingkosninga.
Forsætisráðuneytið