Skipulag

Skipurit forsætisráðuneytisins

Æðsti yfirmaður forsætisráðuneytis er forsætisráðherra. Æðsti embættismaður ráðuneytisins er ráðuneytisstjóri, sem stýrir daglegum rekstri þess. Starfsmenn eru um fjörutíu talsins.

Fjallað er um verkefnasvið forsætisráðuneytis í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta (14.3.2025).

Uppfært í september 2024

Forsætisráðuneytið skiptist í þrjár skrifstofur og er málefnasvið þeirra eftirfarandi:

Skrifstofa stjórnskipunar

  • Stjórnarskráin og þróun stjórnskipunarréttar
  • Lög um Stjórnarráð Íslands og verkaskipting í Stjórnarráðinu
  • Stjórnsýslu- og upplýsingalög
  • Ráðgjafi um upplýsingarétt almennings
  • Heilindi í opinberum störfum
  • Samskipti við Alþingi og forseta Íslands
  • Málefni ríkisstjórnar
  • Málefni ríkisráðs
  • Málefni ráðherranefnda
  • Þjóðartákn og orður
  • Alþjóðasamskipti og samhæfing á sviði Evrópusamvinnu
  • Upplýsingagjöf til fjölmiðla og almennings
  • Viðburðastjórnun
  • Umbætur í stjórnsýslu
  • Umsýsla ráðuneytisstjórahóps
  • Þjónusta við ráðherra
  • Ríkislögmaður
  • Umboðsmaður barna
  • Úrskurðarnefnd um upplýsingamál

Skrifstofa samhæfingar

  • Stuðningur við stefnumótun ríkisstjórnar, ráðuneytisins og stofnana
  • Eftirfylgni með stefnu ríkisstjórnar
  • Samhæfing lykilverkefna sem ganga þvert á ráðuneyti
  • Þjóðhagsmál og almenn hagstjórn
  • Samskipti við aðila vinnumarkaðarins
  • Þjóðhagsráð
  • Sjálfbær þróun og réttlát umskipti
  • Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
  • Áfallaþol
  • Umbætur í stefnumótun og samhæfingu í Stjórnarráðinu
  • Velsældarhagkerfið
  • Seðlabanki Íslands
  • Hagstofa Íslands
  • Þjóðaröryggisráð

Skrifstofa fjármála

  • Rekstur
  • Fjármál
  • Fjárlagagerð
  • Tæknimál og starfsumhverfi
  • Framkvæmd fjárlaga
  • Eignamál
  • Húsnæðismál
  • Gæðamál
  • Umbætur og þróun í innri starfsemi ráðuneytisins
  • Skjalastjórnun
  • Mannauðsmál
  • Umbætur í rekstri Stjórnarráðsins
  • Þjóðlendur
  • Veitingaþjónusta
  • Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
  • Hrafnseyri