banner-80.png (49380 bæti)

Lýðveldi í 80 ár

Íslenska lýðveldið var stofnað á Þingvöllum þann 17. júní 1944 og fagnaði því 80 ára afmæli árið 2024. Af því tilefni skipaði Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra nefnd sem vann að undirbúningi viðburða til að halda upp á tímamótin. Nefndin var skipuð fulltrúum forsætisráðuneytisins, menningar- og viðskiptaráðuneytisins, skrifstofu Alþingis, skrifstofu forseta Íslands og Þingvallaþjóðgarðs.

Íslendingar höfðu á seinni hluta 19. aldar og snemma á 20. öld smám saman fengið aukið sjálfstæði með stjórnarskrá árið 1874 sem veitti Alþingi löggjafarvald, heimastjórn árið 1904 og loks fullveldi árið 1918. Með stofnun lýðveldis hér á landi árið 1944 lauk sambandi Íslands og Danmerkur sem staðið hafði yfir í aldir og var því stjórnarfari sem við þekkjum í dag komið á.

Sérstök hátíðardagskrá í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins var sett upp með fjölda viðburða. Meðal viðburða og verkefna í tilefni af lýðveldisafmælinu má nefna útgáfu bókar um þjóðhátíðarljóð, hátíð á Hrafnseyri, þjóðhátíð á Þingvöllum, gönguferðir um þjóðlendur, opið hús á Bessastöðum og Alþingi auk menningarviðburða um allt land.

Hátíðahöldin náðu hámarki 17. júní, þegar 80 ár voru liðin frá stofnun lýðveldis á Íslandi, með dagskrá og kórasöng um allt land.