Fræðslumyndband um Stjórnarráð Íslands
Kynning þessi á Stjórnarráði Íslands er einkum hugsuð fyrir ungmenni í grunn- og framhaldsskólum og getur nýst sem námsefni í samfélagsfræði.
Hér á vef Stjórnarráðsins er að finna ýmsar upplýsingar um ríkisstjórn og ráðuneyti sem hægt er að kynna sér nánar.
Ríkisstjórn
- Ráðherrar í núverandi ríkisstjórn
- Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinnar
- Listi yfir frumvörp og fleira sem ríkisstjórnin leggur fram á Alþingi (þingmálaskrá)
- Reglur um starfshætti ríkisstjórnar
Ráðuneyti
- Listi yfir núverandi ráðuneyti
- Verkaskipting ráðuneytanna (forsetaúrskurður um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta á vef Stjórnartíðinda 31.1.2022)
Sögulegt efni
- Um heimastjórnina 1904-1918 og Hannes Hafstein, fyrsta íslenska ráðherrann
- Listi yfir allar ríkisstjórnir á Íslandi
- Saga Stjórnarráðshússins við Lækjartorg
Tengt efni
- Þrískipting valds - löggjafarvald, dómsvald og framkvæmdarvald
- Vefur Alþingis en þar má meðal annars finna lagasafn
- Samráðsgátt - opið samráð stjórnvalda við almenning
Myndbandið er einnig hægt að nálgast á YouTube.
Texti myndbandsins
Ráðherrar í ríkisstjórn og öll ráðuneyti þeirra mynda Stjórnarráð Íslands.
Stjórnarráðið var stofnað árið 1904. Ísland fékk það sem var kallað heimastjórn þegar Danir gáfu Íslendingum eftir framkvæmdavaldið og Hannes Hafstein var skipaður fyrsti íslenski ráðherrann.
Árið 1917 urðu ráðherrarnir þrír og fékk hver sína deild með aðsetur í Stjórnarráðshúsinu við Lækjargötu. Ráðuneytum fjölgaði síðan jafnt og þétt og hafa flest verið 14 talsins.
Ríkisvaldið greinist í þrjá þætti, framkvæmdavald, löggjafarvald og dómsvald. Stjórnarráð Íslands er æðsta stjórnstöð framkvæmdavalds ríkisins. Meginverkefni framkvæmdavaldsins er að framkvæma lögin sem Alþingi setur.
Þegar ný ríkisstjórn tekur við völdum er birt stefnuyfirlýsing þar sem talin eru upp þau mál sem ríkisstjórnin ætlar að vinna að á kjörtímabilinu. Hún setur sér einnig reglur um starfshætti og siðareglur.
Ríkisstjórnin birtir síðan þingmálaskrá við upphaf hvers þings þar sem eru talin upp frumvörp, þingsályktunartillögur og skýrslur sem ráðherrar ætla að leggja fram á því þingi.
Ráðherrar eru með skrifstofur í ráðuneytunum. Þar vinna um 600 manns sem eru ráðherrum til ráðgjafar. Starfsfólkið er með fjölbreytta menntun og er stærsti hlutinn með háskólamenntun. Í ráðuneytunum eru meðal annars markaðar stefnur í þeim málum sem að ráðuneytinu snúa, reglugerðir settar og lagafrumvörp samin.
Drög að frumvörpum og ýmsum áformum stjórnvalda eru birt í Samráðsgátt á netinu þar sem öllum gefst tækifæri til að gera athugasemdir. Þær eru teknar til athugunar áður en frumvörpin eru lögð fram á Alþingi.
Áform og áætlanir stjórnvalda tengjast gjarnan alþjóðlegum sáttmálum. Þannig eru margar stefnur stjórnvalda tengdar heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun sem er áætlun fyrir allan heiminn til ársins 2030.