Undraheimur Þingvallavatns
Fræðsluganga með landverði sem leiðir gesti um þann undraheim sem norðurstrandlengja Þingvallavatns hefur upp á að bjóða.
Þingvellir í 100 ár
"Þingvellir í 100 ár" er kvikmyndaverkefni sem færir áhorfendur aftur í tímann, fyrir stofnun þjóðgarðs og lýðveldis, þegar á Þingvöllum voru bændur og hótel og konungs hús.
Fornleifaskóli framtíðarinnar
Hvað verður grafið upp á Þingvöllum eftir 100 ár eða jafnvel 1000 ár? Hvað erum við að skilja eftir okkur?
Fjallkonuhátíð í Skagafirði
Dagana 7. og 8. september 2024 fer fram Fjallkonuhátíð í Skagafirði. Fjölbreytt dagskrá með áhugaverðum erindum um baðstofulíf og búningaþróun á 19 öld, þjóðbúningasýningu, þjóðbúningamessu, kynnisferð um sögustaði, heimsókn í Glaumbæ, myndatökum og söng.
Sungið með landinu
Kórasöngur í Almannagjá. Vörðukórinn og Mótettukórinn. Hljómburðurinn í gjánni er einstakur.
Fimmtudagskvöld á Þingvöllum
Miðdepill evrópskrar eftirtektar. Stefán Pálsson sagnfræðingur fer yfir sögu fyrri hátíða á Þingvöllum.
Hylling fánans á Þingvöllum 1944
Fáninn er varðveittur í Byggðasafni Reykjanesbæjar og verður hann sýndur í Bíósal Duus safnahúsa frá 17. júní til 18. ágúst.
…að allir séu óhultir
Sýning í Safnahúsinu, börn úr Grindavík sýna. Forsætisráðherra verður viðstaddur opnun.
Þjóðhátíðargleði á Árbæjarsafni
Þjóðhátíðardeginum 17. júní verður fagnað með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá á Árbæjarsafni frá kl. 13-16, frítt inn í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins.
Heimildarmynd um fjallkonuna
Að kvöldi 17. júní verður sýnd í sjónvarpinu ný heimildarmynd um fjallkonuna í tilefni af útgáfu bókarinnar Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær sem er gjöf til þjóðarinnar í tilefni 80 ára afmælis lýðveldisins.
Heill heimur af börnum - börn setja mark sitt á Íslandskortið
Laugardaginn 15. júní kl. 13.00 verður Íslandskortið afhjúpað á Þingvöllum.
Söngganga á Miðfell í Þingvallasveit
Í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins verður efnt til sönggöngu á Miðfell í Þingvallasveit.
Handrit að Lofsöngnum / Ó, guð vors lands
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn sýnir í júní og ágúst kjörgripi úr safni sínu í tilefni 80 ára afmæli lýðveldisins. Kjörgripur ágústmánaðar er handrit af Lofsöngnum eftir Matthías Jochumsson við lag Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.
Teikningar Tryggva Magnússonar að skjaldarmerki Íslands
Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn sýnir í júní og ágúst kjörgripi úr safni sínu í tilefni 80 ára afmæli lýðveldisins. Kjörgripir júnímánaðar eru teikningar Tryggva Magnússonar af skjaldarmerki Íslands.
Ísland í 80 ár! - Málþing um stöðu og þróun lýðveldis og lýðræðis á Íslandi
AkureyrarAkademían stendur fyrir opnu málþingi í tilefni af því að á þessu ári eru 80 ár frá því að lýðveldi var stofnað á Íslandi árið 1944.
Lögréttutjöldin
Þann 14. júní 2024 verður opnuð sýning í Þjóðminjasafni Íslands á veggtjöldum frá Lögréttuhúsinu á Alþingi á Þingvöllum.
Hátíð á Hrafnseyri 16.-17. júní
Þann 16. og 17. júní verði hátíð á Hrafnseyri með dagskrá í tilefni lýðveldisafmælisins og 1150 ára afmælis Íslandsbyggðar.
Þjóðhátíðadagur Íslendinga 17. júní í Reykjvaík
Við skipulagningu á 17 júní hafa verkefnastjórar Reykjavíkurborgar lagt mikla áhersla á að höfða til sem flestra hópa. Töluverð áhersla er tildæmis lögð á fjölmenningu en einnig er sérstaklega horft til þátttöku barna og ungs fólks.
Barnamenningarhátíð 2024 – Þemað er Lýðræði
Barnamenningarhátíð 2024 fer fram dagana 23. -28. apríl næstkomandi.
Sýningin Ljáðu mér vængi. Ævi og áhrif Vigdísar Finnbogadóttur.
Sýningin „Ljáðu mér vængi“ opnaði í Loftskeytastöðinni við Suðurgötu 15. mars 2024.
Heill heimur af börnum – Börn setja mark sitt á Íslandskortið
Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum efna til verkefnisins „Heill heimur af börnum – Börn setja mark sitt á Íslandskortið“.
Kóramót Íslenskra kóra Þrándheimi
Íslenski kórinn í Þrándheimi; Kór Kjartans, heldur kóramót með þáttöku íslenskra kóra frá Norðurlöndum og Norður-Evrópu dagana 26. til 29. Apríl 2024. Langflest söngfólkið eru Íslendingar búsettir í viðkomandi löndum og borgum – margir til lengri tíma.
Daufur skuggi, fánar í íslenskri myndlist
Í Sýningarstofu Safnahússins við Hverfisgötu verður sjónum beint að fjölbreyttum verkum úr safneign Listasafns Íslands þar sem fánar eru útgangspunkturinn.
Framtíðarfortíð
Framtíðarfortíð Listasafns Íslands og Listasafns Ísafjarðar er fyrsta sýningin í röð sýninga sem marka samvinnu Listasafns Íslands og safna á landsbyggðinni.
Þjóð í mynd: Myndefni frá stofnun lýðveldis 1944
Kvikmyndasafn Íslands og Þjóðminjasafn Íslands munu standa saman að sýningu um stofnun lýðveldis á Íslandi hinn 17. júní 1944.
Nýtt kórlag
Afmælisnefnd í samvinnu við samtök íslenskra kóra og kórstjóra, efndi til samkeppni um nýtt kórlag sem flutt verður í tengslum við 80 ára afmæli lýðveldisins 17. júní 2024.
Opið hús á Bessastöðum
Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi laugardaginn 8. júní í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldis á Íslandi.
Alþingi býður í heimsókn 14. september
Almenningi gefst kostur á að skoða Alþingishúsið og Smiðju, nýja skrifstofubyggingu Alþingis, laugardaginn 14. september. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram í leiðsögn um Alþingishúsið en ekki þarf að skrá sig í heimsókn í Smiðju.
17. júní um allt land
Hefðbundin þjóðhátíðardagskrá fari fram 17. júní um allt land eins og venja er.
Velkomin til Þingvalla – 15-17. júní
Margir viðburðir í þjóðgarðinum á Þingvöllum tileinkaðir lýðveldisafmælinu sem nær hámarki helgina 15-16. júní með þéttri menningardagskrá og tónleikum sunnudagskvöldið 16. júní.
Gengið um þjóðlendur (júní-ágúst)
Í tilefni þess að starfi óbyggðanefndar er að ljúka verður efnt til boðgöngu eftir þjóðlendulínunni sem markar ytri mörk hálendisins. Um leið yrði sú lína GPS-hnitasett. Ráðherra myndi ganga með síðasta spölinn og þar með undirstrika með táknrænum hætti þá þjóðareign sem tekið hefur á sig áþreifanlega mynd með setningu þjóðlendulaga og framkvæmd á grundvelli þeirra.
1150 ára saga Íslandsbyggðar – dagskrá fyrir fjölskylduna á Hrafnseyri
Þann 16. og 17. júní verði hátíð á Hrafnseyri með dagskrá í tilefni lýðveldisafmælisins og 1150 ára afmælis Íslandsbyggðar og verði sjónum beint að sögu og landnámsminjum á Hrafnseyri.
Málþing um stjórnarskrána
Forsætisráðuneytið og Alþingi, í samvinnu við Háskóla Íslands, efna til málþings 5. janúar 2024 um alþingiskafla stjórnarskrárinnar, en einnig verður minnst 150 ára afmælis fyrstu stjórnarskrárinnar.
Bók til landsmanna - Fjallkonan. Þú ert móðir vor kær
Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Forlagið, gefur út bók með þjóðhátíðarljóðum og greinum um fjallkonuna 17. júní 2024 sem verði gefin landsmönnum.
Sungið með landinu - Kórsöngur um land allt
Kórar hvaðanæva af landinu munu syngja valin lög á þjóðhátíðardaginn 17. júní undir yfirskriftinni Sungið með landinu. Unnið verði myndband með brotum af kórum að syngja um allt land.