Þarf að uppfæra embættismannakerfið?
Forsætisráðuneytið efndi til málþings þriðjudaginn 11. nóvember 2025 undir yfirskriftinni Þarf að uppfæra embættismannakerfið? Þar var fjallað um skýrslu og tillögur starfshóps um hlutverk og starfsskilyrði embættismanna. Málþingið fór fram á Hilton Reykjavík Nordica.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti opnunarávarp og þrír erlendir sérfræðingar héldu erindi í fyrri hluta málþingsins sem var á ensku. Í seinni hlutanum, sem var á íslensku, kynntu fulltrúar starfshópsins tillögur hans og helstu niðurstöður en málþinginu lauk á pallborðsumræðum.
Kjölfesta lýðræðisins - skýrsla um embættismannakerfið
Viðaukar við skýrslu um embættismannakerfið
Summary and conclusions of the report
Glærur frá fyrirlesurum á málþinginu:
Boosting Capacity of Public LeadershipDaniel Gerson, yfirmaður málefna opinbers vinnumarkaðar og opinberrar stjórnunar hjá OECD
Recruitment of top civil servants in DenmarkBo Smith, fyrrverandi ráðuneytisstjóri í Danmörku
Sharing Practice: How we organise our Top Civil Service in the NetherlandsSonja Hamhuis, sérfræðingur, embættismannadeildinni í innanríkisráðuneyti Hollands
Kynning á tillögum í embættismannaskýrslunniPáll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu
Niðurstöður rannsóknar á reynslu ráðherra og ráðuneytisstjóraDr. Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands