03 nóvember 2022
Hittumst á ísbreiðunni - Norðurslóðahátíðin 2022
Hin árlega Norðurslóðahátíð, Arktisk Festival fer fram á Norðurbryggju dagana 5. - 6. nóvember n.k.
Að því tilefni fær sendiráðið Vilborgu Örnu Gissurardóttur og Einar Torfa Finnsson í heimsókn þar sem þau munu segja frá ferðalagi sínu yfir Grænlandsjökul, en bæði þveruðu þau jökulinn og mættust á miðri leið á vormánuðum.