04 febrúar 2021
Sendiherra afhendir trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands í Rúmeníu
Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Danmörku, afhenti í dag trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Rúmeníu með aðsetur í Kaupmannahöfn. Þar sem kórónafaraldurinn leyfir ekki ferðalög til Rúmeníu eins og er, fór afhendingin fram í sendiráði Rúmeníu í Kaupmannahöfn, sem jafnframt er sendiráð gagnvart Íslandi. Sendiherra Rúmeníu, Alexandru Gradinar, tók við trúnaðabréfinu úr hendi sendiherra.…