07 febrúar 2022
Sendiherra afhendir trúnaðarbréf á Sri Lanka
Guðni Bragason afhenti Gotabaya Rajapaksa forseta Sri Lanka trúnaðarbréf sitt hinn 1. febrúar 2022 sem sendiherra gagnvart ríkinu með aðsetri í Nýju-Delhí. Bar sendiherra forsetanum kveðjur forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, og sagðist myndu vinna heils hugar að því að efla samskipti ríkjanna.