17 júlí 2021
Indversk-íslenska viðskiptaráðið kveður fráfarandi forstöðumann sendiráðsins og býður nýjan sendiherra velkominn
Formaður Indversk-íslenska viðskiptaráðsins (Indo Icelandic Business Association, IIBA), Prasoon Dewan, bauð til kvöldverðarfundar með stjórn IIBA, til að ræða málefni ráðsins og kveðja Kristínu Evu Sigurðardóttur forstöðumann sendiráðs Íslands í Nýju-Delhí síðan í júní 2020, sem nú hverfur til starfa í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík.