27 apríl 2018
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga hafin
Tekið er á móti kjósendum í sendiráðinu í París alla virka daga frá 9:30-15:30. Kosningarrétt eiga allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, 26. maí 2018, og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, þ.e. 5. maí 2018.