07 desember 2023
Opnun sýningarinnar "Retour d'Islande"
Fjölmenni var við opnun á sýningu á verkum franska listamannsins Bernard Alligand, „Retour d‘Islande" (Heimkoma frá Íslandi) í embættisbústaðnum í París í fyrradag. Verðlaunamyndin „Échos“ um hugarheim listamannsins á Íslandi eftir Axel Clévenot, var einnig til sýnis á opnuninni.