Menningartengd ferðaþjónusta
Hlutverk starfshópsins „Menningartengd ferðaþjónusta“ er að fara yfir fyrirliggjandi gögn, safna saman ólíkum sjónarmiðum og ábendingum, vinna úr þeim og skila til stýrihóps 4-5 útfærðum tillögum að aðgerðum innan síns sviðs í takt við áherslur sem koma fram í uppfærðum stefnuramma sem myndar grunn að Ferðamálastefnu 2030.
Á meðal þess sem hópurinn hefur til umfjöllunar er:
- Söfn
- Menningararfur
- Listir og menning
- Hönnun og arkitektúr
- Íslenska
Miðað er við að hver starfshópur fundi reglulega og fundi meðal annars með helstu haghöfum sem umræddir áherslupunktar varða. Formenn starfshópa funda reglulega með stýrihópi verkefnisins um framgang innan starfshópsins og samræmingu.
Skipan hópsins
Formaður: Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu
Áskell Heiðar Ásgeirsson, Háskólinn á Hólum
Einar Á. Sæmundsen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum
Rögnvaldur Guðmundsson, Samtök um söguferðaþjónustu
Sigtryggur Baldursson, Útón
Halla Helgadóttir, Hönnunarmiðstöð
Ragnhildur Ágústsdóttir, Lava Show (tilnefnd af SAF)
Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði HÍ (tilnefnd af SAF)
Margrét Björk Björnsdóttir, forstöðumaður Markaðsstofu Vesturlands (tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitafélaga)
Með hópnum starfa:
María Hjálmarsdóttir, ráðgjafi RATA
Kristrún Heiða Hauksdóttir, menningar- og viðskiptaráðuneytið
Tímalína
Gagnasafn
Kvikmyndastefna til 2030Myndlistarstefna til 2030Tónlistarstefna til 2030Útlínur framtíðar - Stefna í hönnunar og arkítektúrs til 2030Menningararfurinn - stefna um varðveislu og aðgengiStefna um verndun og rannsóknir á fornleifum og byggingararfiStefnumörkun um safnastarf 2021Menningarsókn – aðgerðaáætlun í menningarmálum til 2030Menningarstefna 2013Hagtölur - Gestir safna og skyldrar starfsemiSöfn og ferðaþjónustaNordic Food in Future TourismStefna Noregs í menningartengdri ferðaþjónustuFerðamálastefna