Jarða- og lögbýlaskrá

Lögbýlaskrá

Lögbýlaskrá er gefin út samkvæmt jarðalögum á grundvelli upplýsinga úr jarðaskrá. Í lögbýlaskrá er að finna upplýsingar um öll lögbýli á landinu.

Samkvæmt 22. gr. jarðalaga skal þinglýsa lögbýlisleyfi og öðlast það þá fyrst gildi. Þinglýsingarbækur sýslumanna er að finna í réttindahluta fasteignaskrár. Beintenging er milli þinglýsingar lögbýlisleyfis og merkingar viðkomandi eignar sem lögbýlis í fasteignaskrá. Upplýsingar varðandi eigendur og ábúendur eru sóttar í þinglýsingabækur og þjóðskrá.

Skránni er skipt eftir sveitarfélaganúmerum. Í fremsta dálki er að finna upplýsingar um heiti eignarinnar og þar fyrir aftan landnúmer hennar. Þar næst birtast upplýsingar um hvort eignin sé merkt í eyði og er sú merking sótt í fasteignaskrána. Aftasti dálkurinn inniheldur upplýsingar um eigendur og ábúendur og eru eigendur merktir með bókstafnum „E“ og ábúendur með bókstafnum „Á“.

Lögbýlaskrá 2022

Nánar á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Jarðaskrá

Atvinnuvegaráðuneytið skal 31. desember ár hvert gefa út jarðaskrá á grundvelli upplýsinga úr jarðahluta fasteignaskrár samkvæmt 11. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Hagþjónusta landbúnaðarins sá um gerð og útgáfu jarðaskrár samkvæmt lögunum. Þegar Hagþjónusta landbúnaðarins var lögð niður frá og með 1. janúar 2012 var ekki gert samkomulag við annan aðila um gerð og útgáfu skrárinnar, enda þær upplýsingar sem tilgreina skal í jarðaskrá, aðgengilegar í annars vegar jarðahluta fasteignaskrár og hins vegar í lögbýlaskrá.

Sjá einnig: