Reglur byggðakvóta 2024-2025
Í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, er að finna ákvæði er varða skilyrði um úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum. Ráðherra setur almenn skilyrði fyrir úthlutun með reglugerð. Almennar reglur um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025 eru í reglugerð nr. 819/2024, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Ráðherra getur heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga.
Í 7. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, eru ákvæði er varða skilyrði um skyldu til að landa til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga og getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum.
Ráðherra getur því á grundvelli framangreindra heimilda byggt á tillögum sveitarstjórna sem víkja frá ákvæðum í almennu reglunum sem er að finna í framangreindri reglugerð. Sveitarstjórnum var veittur frestur til 21. febrúar sl. til að skila inn tillögum er varða þau byggðarlög sem fá úthlutun byggðakvóta innan hvers sveitarfélags.
Málsmeðferð ráðuneytis
Ráðuneytið tilkynnir viðeigandi sveitarstjórn um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga innan sveitarfélagsins á grundvelli ákvæða reglugerðar nr. 818/2024, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2024/2025.
Erindi sveitarstjórnar um beiðni á setningu sérreglna berst ráðuneytinu ásamt tillögu að sérreglum.
Ráðuneytið móttekur erindið og undirbýr kynningu á tillögu sveitarfélags.
Kynning á tillögum sveitarstjórnar. Ráðuneytið birtir tillögu sveitarstjórnar á vef ráðuneytisins í sjö daga og óskar eftir athugasemdum varðandi tillögu viðkomandi sveitarstjórnar.
Ráðuneytið móttekur athugasemdir vegna tillögu sveitarstjórnar fyrir viðkomandi byggðarlag og undirbýr kynningu á athugasemdum.
Ráðuneytið metur hvort rökstuðningur tillagna sveitarstjórnar sé fullnægjandi eða hvort um annmarka sé um að ræða á tillögu sveitarstjórnar vegna viðkomandi byggðarlags m.t.t. afgreiðslu hennar. Ef svo er þá er sveitarstjórn tilkynnt um slíkt og gefinn kostur til úrbóta á innsendri tillögu.
Ráðuneytið tekur tillögu sveitarstjórnar til efnislegar meðferðar. Við mat ráðuneytisins verður sérstaklega litið til rökstuddra tillagna sveitarfélags um að víkja frá skilyrðum á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna enda séu þau í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Ráðuneytið kannar hvort aðstæður hafi breyst í viðkomandi byggðarlagi sem gefi tilefni til að fallast á eða hafna tilteknum atriðum í tillögum sveitarstjórnar. Bent skal á að þótt tilteknar tillögur að sérreglum hafi verið staðfestar á fyrri fiskveiðiárum er það ekki vísbending um að sambærilegar tillögur að sérreglum muni verða samþykktar fyrir viðkomandi byggðarlag fyrir fiskveiðiárið 2024/2025 þar sem ráðuneytinu ber að taka afstöðu til hverrar tillögu fyrir sig með hliðsjón af málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga í hverju tilviki fyrir sig.
Ráðuneytið skrifar fundargerð um afgreiðslu erindis.
- Ráðuneytið staðfestir að fullu tillögu sveitarstjórnar um sérreglur.
- Ráðuneytið staðfestir að hluta tillögu sveitarstjórnar um sérreglur.
- Ráðuneytið hafnar tillögu sveitarstjórnar um sérreglur.
Ráðuneytið sendir bréf til sveitarstjórnar um niðurstöðu ásamt rökstuðningi á afgreiðslu. Ef ástæða er til þá er sveitarstjórnum gefin kostur til úrbóta á innsendri tillögu. Auglýsing sérreglna fyrir viðkomandi byggðarlag/byggðarlög er send Stjórnartíðindum til birtingar. Ráðuneytið getur gert leiðréttingar og formbreytingar á tillögum sveitarstjórna ef þörf er á ef það er nauðsynlegt m.t.t. málfars eða samhengis. Ráðuneytið mun hins vegar ekki leggja til efnisbreytingar á tillögum sveitarstjórna heldur verða slíkar tillögur að berast ráðuneytinu frá viðkomandi sveitarstjórnum.
Ráðuneytið sendir Fiskistofu fyrirmæli um að auglýsa byggðakvóta til fiskiskipa til umsóknar fyrir viðkomandi byggðarlag/byggðarlög eftir að sérreglur hafa verið birtar í Stjórnartíðindum.
Tillögur sveitarstjórna fyrir einstök byggðarlög
Akureyrarbær
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Akureyrarbær | Grímsey |
|
| 133,000 |
Hrísey |
|
|
|
Árneshreppur
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Árneshreppur | Norðurfjörður |
| 2,647 |
|
Bolungarvíkurkaupstaður
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Bolungarvíkurkaupstaður | Bolungarvík | 65 | 0,000 | 65,000 |
- Ekki óskað eftir sérreglum.
Dalvíkurbyggð
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Dalvíkurbyggð | Árskógssandur | 58 | 26,339 | 84,339 |
Dalvík | 21 | 6,468 | 27,468 | |
Hauganes | 15 | 15,000 | 30,000 |
Fjallabyggð
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Fjallabyggð | Ólafsfjörður | 18 | 22,963 | 40,963 |
Siglufjörður | 195 | 82,392 | 277,392 |
Fjarðabyggð
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Fjarðabyggð | Breiðdalsvík | 34 | 0,000 | 34,000 |
Mjóifjörður | 15 | 12,893 | 27,893 | |
Stöðvarfjörður | 32 | 18,726 | 50,726 |
- Tillaga að sérreglum hefur ekki borist.
Grundarfjarðarbær
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Grundarfjarðarbær | Grundarfjörður | 130 | 0,000 | 130,000 |
- Tillaga að sérreglum hefur ekki borist.
Grýtubakkahreppur
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Grýtubakkahreppur | Grenivík | 65 | 96,178 | 161,178 |
Húnabyggð
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Húnabyggð | Blönduós | 15 | 4,153 | 19,153 |
Húnaþing vestra
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Húnaþing vestra | Hvammstangi | 130 | 128,838 | 258,838 |
Ísafjarðarbær
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Ísafjarðarbær | Flateyri | 285 | 121,913 | 406,913 |
Hnífsdalur | 0 | 0,000 | 0,000 | |
Ísafjörður | 195 | 15,821 | 210,821 | |
Suðureyri | 192 | 2,546 | 194,546 | |
Þingeyri | 275 | 29,107 | 304,107 |
Kaldrananeshreppur
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Kaldrananeshreppur | Drangsnes | 76 | 12,967 | 88,967 |
Langanesbyggð
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Langanesbyggð | Bakkafjörður | 160 | 3,881 | 163,881 |
Langanesbyggð | 32 | 0,577 | 32,577 |
Múlaþing
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Múlaþing | Borgarfjörður eystri | 15 | 6,073 | 21,073 |
Djúpivogur | 285 | 0,000 | 285,000 | |
Seyðisfjörður | 0 | 0,000 | 0,000 |
- Ekki óskað eftir sérreglum.
Norðurþing
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Norðurþing | Húsavík | 0 | 0,000 | 0,000 |
Kópasker | 15 | 0,000 | 15,000 | |
Raufarhöfn | 164 | 31,035 | 195,035 |
Skagafjörður
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Skagafjörður | Hofsós | 15 | 7,272 | 22,272 |
Sauðárkrókur | 130 | 0,292 | 130,292 |
Snæfellsbær
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Snæfellsbær | Arnarstapi | 0 | 1,479 | 1,479 |
Hellissandur | 0 | 0,000 | 0,000 | |
Ólafsvík | 0 | 0,000 | 0,000 | |
Rif | 0 | 0,134 | 0,134 |
- Tillaga að sérreglum hefur ekki borist.
Strandabyggð
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Strandabyggð | Hólmavík | 130 | 8,515 | 138,515 |
- Ekki óskað eftir sérreglum.
Suðurnesjabær
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Suðurnesjabær | Sandgerði | 65 | 0,400 | 65,400 |
Garður | 65 | 0,346 | 65,346 |
)
)
Súðavíkurhreppur
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Súðavíkurhreppur | Súðavík | 30 | 60,000 | 90,000 |
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Sveitarfélagið Árborg | Eyrarbakki | 0 | 1,950 | 1,950 |
Stokkseyri | 30 | 26,550 | 56,550 |
Sveitarfélagið Hornafjörður
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Sveitarfélagið Hornafjörður | Höfn | 0 | 0,000 | 0,000 |
- Athugasemdir ráðuneytis: Engum byggðakvóta er úthlutað til byggðarlagsins og ekki eru til ráðstöfunar eftirstöðvar byggðakvóta fyrra árs því kemur ekki til afgreiðslu á tillögum að sérreglum.
Sveitarfélagið Skagaströnd
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Sveitarfélagið Skagaströnd | Skagaströnd | 55 | 3,746 | 58,746 |
Sveitarfélagið Stykkishólmur
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Sveitarfélagið Stykkishólmur | Stykkishólmur | 65 | 0,000 | 65,000 |
- Tillaga hefur ekki borist.
Sveitarfélagið Vogar
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Sveitarfélagið Vogar | Vogar | 15 | 28,000 | 43,000 |
- Tillaga hefur ekki borist.
Sveitarfélagið Ölfus
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Sveitarfélagið Ölfus | Þorlákshöfn | 0 | 15,086 | 15,086 |
- Tillaga hefur ekki borist.
Vesturbyggð
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Vesturbyggð | Bíldudalur | 15 | 34,749 | 49,749 |
Brjánslækur | 15 | 1,808 | 16,808 | |
Patreksfjörður | 15 | 0,000 | 15,000 | |
Tálknafjörður | 285 | 155,408 | 440,408 |
Vopnafjarðarhreppur
Sveitarfélag | Byggðarlag | Úthlutun 2024/2025 (t) | Eftirstöðvar af úthlutun 2023/2024 (t) | Samtals til ráðstöfunar 2024/2025 (t) |
|---|---|---|---|---|
Vopnafjarðarhreppur | Vopnafjörður | 54 | 51,500 | 105,500 |
Síðast uppfært 28. mars 2025.