Reglur byggðakvóta 2025-2026
Reglur byggðakvóta 2025-2026
Í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, er að finna ákvæði er varða skilyrði um úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum. Ráðherra setur almenn skilyrði fyrir úthlutun með reglugerð. Almennar reglur um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 eru í reglugerð nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026.
Á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar getur ráðherra heimilað að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum sem koma fram í reglugerðinni enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga.
Í 7. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, eru ákvæði er varða skilyrði um skyldu til að landa til vinnslu innan hlutaðeigandi byggðarlaga og getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum.
Ráðherra getur því á grundvelli framangreindra heimilda byggt á tillögum sveitarstjórna sem víkja frá ákvæðum í almennu reglunum sem er að finna í framangreindri reglugerð. Sveitarstjórnum var veittur frestur til 19. janúar nk. til að skila inn tillögum er varða þau byggðarlög sem fá úthlutun byggðakvóta innan hvers sveitarfélags.
Málsmeðferð ráðuneytis
- Ráðuneytið tilkynnir viðeigandi sveitarstjórn um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga innan sveitarfélagsins á grundvelli ákvæða reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2025/2026.
- Erindi sveitarstjórnar um beiðni á setningu sérreglna berst ráðuneytinu ásamt tillögu að sérreglum.
- Ráðuneytið móttekur erindið og undirbýr kynningu á tillögu sveitarfélags.
- Kynning á tillögum sveitarstjórnar. Ráðuneytið birtir tillögu sveitarstjórnar á vef ráðuneytisins í sjö daga og óskar eftir athugasemdum varðandi tillögu viðkomandi sveitarstjórnar.
- Ráðuneytið móttekur athugasemdir vegna tillögu sveitarstjórnar fyrir viðkomandi byggðarlag og undirbýr kynningu á athugasemdum.
- Ráðuneytið metur hvort rökstuðningur tillagna sveitarstjórnar sé fullnægjandi eða hvort um annmarka sé um að ræða á tillögu sveitarstjórnar vegna viðkomandi byggðarlags m.t.t. afgreiðslu hennar. Ef svo er þá er sveitarstjórn tilkynnt um slíkt og gefinn kostur til úrbóta á innsendri tillögu.
- Ráðuneytið tekur tillögu sveitarstjórnar til efnislegar meðferðar. Við mat ráðuneytisins verður sérstaklega litið til rökstuddra tillagna sveitarfélags um að víkja frá skilyrðum á grundvelli málefnalegra og staðbundinna ástæðna enda séu þau í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Ráðuneytið kannar hvort aðstæður hafi breyst í viðkomandi byggðarlagi sem gefi tilefni til að fallast á eða hafna tilteknum atriðum í tillögum sveitarstjórnar. Bent skal á að þótt tilteknar tillögur að sérreglum hafi verið staðfestar á fyrri fiskveiðiárum er það ekki vísbending um að sambærilegar tillögur að sérreglum muni verða samþykktar fyrir viðkomandi byggðarlag fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 þar sem ráðuneytinu ber að taka afstöðu til hverrar tillögu fyrir sig með hliðsjón af málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga í hverju tilviki fyrir sig.
- Ráðuneytið skrifar fundargerð um afgreiðslu erindis.
- Ráðuneytið staðfestir að fullu tillögu sveitarstjórnar um sérreglur.
- Ráðuneytið staðfestir að hluta tillögu sveitarstjórnar um sérreglur.
- Ráðuneytið hafnar tillögu sveitarstjórnar um sérreglur.
- Ráðuneytið sendir bréf til sveitarstjórnar um niðurstöðu ásamt rökstuðningi á afgreiðslu. Ef ástæða er til þá er sveitarstjórnum gefin kostur til úrbóta á innsendri tillögu. Auglýsing sérreglna fyrir viðkomandi byggðarlag/byggðarlög er send Stjórnartíðindum til birtingar. Ráðuneytið getur gert leiðréttingar og formbreytingar á tillögum sveitarstjórna ef þörf er á ef það er nauðsynlegt m.t.t. málfars eða samhengis. Ráðuneytið mun hins vegar ekki leggja til efnisbreytingar á tillögum sveitarstjórna heldur verða slíkar tillögur að berast ráðuneytinu frá viðkomandi sveitarstjórnum.
- Ráðuneytið sendir Fiskistofu fyrirmæli um að auglýsa byggðakvóta til fiskiskipa til umsóknar fyrir viðkomandi byggðarlag/byggðarlög eftir að sérreglur hafa verið birtar í Stjórnartíðindum.
Auglýsing/ar um sérreglur sveitarfélaga 2026
Auglýsing um (1.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026(Stjórnartíðindi 23. febrúar 2026)
(Stjórnartíðindi 11. mars 2026)
(Stjórnartíðindi 8. apríl 2026)
Heildarúthlutun byggðakvóta
Gögn og tillögur sveitarstjórna fyrir einstök byggðarlög
Akureyrarbær
-
(samþ. 20. jan. 2026)
(samþ. 20. jan. 2026)
- Frestur veittur til og með 26. jan. nk. til að leggja fram tillögur að sérreglum vegna úthlutunar byggðakvóta til Grímseyjar og Hríseyjar. (12. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Árneshreppur
-
(samþ. 6. feb. 2026)
(samþ. 26. feb. 2026)
- Frestur veittur til og með 11. febr. nk. til að leggja fram tillögur að sérreglum (20. jan. 2026).
(18. des. 2025)
Bolungarvíkurkaupstaður
- Ekki óskað eftir sérreglum. (7. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Dalvíkurbyggð
-
(samþ. 20. jan. 2026)
(samþ. 20. jan. 2026)
- Frestur veittur til og með 21. jan. nk. til að leggja fram tillögur að sérreglum (8. jan. 2026).
(18. des. 2025)
Fjallabyggð
-
(samþ. í sveitarstjórn 8. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Fjarðabyggð
- Ekki óskað eftir sérreglum. (29. des. 2025)
(18. des. 2025)
Grundarfjarðarbær
- Ekki óskað eftir sérreglum (9. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Grýtubakkahreppur
-
(samþ. 12. jan. 2026)
(12. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Húnabyggð
-
(samþ. 13. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Húnaþing vestra
-
(samþ. 12. feb. 2026)
(samþ. 12. feb. 2026)
(samþ. 9. feb. 2026)
- Frestur veittur til og með 12. febr. nk. til að leggja fram tillögur að sérreglum (15. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Ísafjarðarbær
-
(samþ. 15. jan. 2026)
(samþ. 15. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Kaldrananeshreppur
-
(samþ. 28. jan. 2026)
(samþ. 28. jan. 2026)
- Frestur veittur til og með 29. jan. nk. til að leggja fram tillögur að sérreglum (20. jan. 2026).
(18. des. 2025)
Langanesbyggð
-
(13. jan. 2026)
(13. jan. 2026)
(13. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Múlaþing
-
- jan. 2026)
(18. des. 2025)
Norðurþing
-
(samþ. 22. jan. 2026)
(samþ. 22. jan. 2026)
- Frestur veittur til og með 23. jan. nk. til að leggja fram tillögur að sérreglum (15. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Skagafjörður
-
(2. febr. 2026)
(samþ. 22. jan. 2026)
- Frestur veittur til og með 22. jan. nk. til að leggja fram tillögur að sérreglum (16. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Snæfellsbær
- Ekki óskað eftir sérreglum (20. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Strandabyggð
-
(samþ. 13. jan. 2026)
(samþ. 13. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Suðurnesjabær
-
(samþ. 14. jan. 2026)
(samþ. 14. jan. 2026)
(16. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Súðavíkurhreppur
-
(samþ. 13. feb. 2026)
(samþ. 13. feb. 2026)
- Frestur veittur til og með 13. febr. nk. til að leggja fram tillögur að sérreglum (20. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Sveitarfélagið Árborg
-
(samþ. 8. jan. 2026)
(samþ. 8. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Sveitarfélagið Hornafjörður
-
(samþ. 12. feb. 2026)
(samþ. 12. feb. 2026)
- Frestur veittur til og með 13. febr. til að leggja fram tillögur að sérreglum (20. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Sveitarfélagið Skagaströnd
-
(samþ. 7. jan. 2026)
(samþ. 7. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Sveitarfélagið Stykkishólmur
- Engar sérreglur bárust.
(18. des. 2025)
Sveitarfélagið Ölfus
-
(samþ. 5. feb. 2026)
(samþ. 5. feb. 2026)
- Frestur veittur til og með 6. febr. til að leggja fram tillögur að sérreglum (20. jan. 2026).
(18. des. 2025)
Vesturbyggð
-
(8. júní 2026)
(12. apríl 2026)
(samþ. 21. jan. 2026)
(samþ. 21. jan. 2026)
- Frestur veittur til og með 22. jan. til að leggja fram tillögur að sérreglum (5. jan. 2026).
(18. des. 2025)
Vopnafjarðarhreppur
-
(samþ. 8. jan. 2026)
(samþ. 15. jan. 2026)
(samþ. 15. jan. 2026)
(18. des. 2025)
Síðast uppfært 8. júní 2026