Heilbrigðisþjónusta utan stofnana
Sérfræðiþjónusta og hjúkrun utan sjúkrahúsa er veitt af sérgreinalæknum, tannlæknum, hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum. Þjónusta sjúkrahótels fellur einnig undir þennan málaflokk.
Sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun utan sjúkrahúsa er veitt af sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum og talmeinafræðingum.
Til sjúkraflutninga teljast allir flutningar sjúkra og slasaðra utan sjúkrahúsa. Þjónustan er veitt af rekstraraðilum sem starfa samkvæmt samningum eða á vegum heilbrigðisstofnana.
Greiðsluþátttaka ríkisins í kostnaði við heilbrigðisþjónustu sem veitt er utan heilbrigðisstofnana sem ríkið rekur er háð því að um hana hafi tekist samningur milli rekstraraðila og ríkisins samkvæmt ákvæðum VII. kafla laga um heilbrigðisþjónustu og lögum um sjúkratryggingar, nema fyrir liggi einhliða ákvörðun ráðherra um greiðsluþátttöku á grundvelli sérstakrar heimildar í öðrum lögum.
Sjá einnig:
Greiðsluþátttaka ríkisins
Ákvæði VII. kafla laga um heilbrigðisþjónustu og lög um sjúkratryggingar um samning milli rekstraraðila og ríkisins
Eftirlit
- Embætti landlæknis hefur eftirlit með starfsemi stofnana og starfi heilbrigðisstétta
Heilbrigðismál