Heilbrigðisumdæmi

Í lögum um heilbrigðisþjónustu er kveðið á um grunnskipulag heilbrigðisþjónustunnar og um skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi. Heilbrigðisstofnanir sem veita almenna heilbrigðisþjónustu í hverju umdæmi eiga samkvæmt lögunum að hafa með sér samstarf um skipulag heilbrigðisþjónustu á viðkomandi svæði.

Kveðið er á um skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi í reglugerð ráðherra nr. 111/2020.

Samkvæmt reglugerðinni skulu heilbrigðisstofnanir innan heilbrigðisumdæma hafa samráð um:

  1. Skipulag heilsugæslu í umdæminu með það að markmiði að tryggja öllum íbúum aðgengi að heilsugæslu í heimabyggð og að heilsugæslan sé að jafnaði fyrsti viðkomustaður sjúklinga.
  2. Skipulag hjúkrunarþjónustu í heimahúsum, hjúkrunarrýmum stofnana og á hjúkrunarheimilum með það að markmiði að allir íbúar í umdæminu eigi kost á fullnægjandi hjúkrunarþjónustu í samræmi við þarfir sínar.
  3. Skipulag almennrar sjúkrahúsþjónustu í umdæminu.
    Í reglugerð ráðherra er einnig kveðið á um stig heilbrigðisþjónustu sem eru eftirfarandi:
  • Fyrsta stigs heilbrigðisþjónusta: Heilsugæsla, heilsuvernd og forvarnir, bráða- og slysamóttaka og önnur heilbrigðisþjónusta á vegum heilsugæslustöðva. Þjónusta og hjúkrun á hjúkrunarheimilum, í hjúkrunar- og dvalarrýmum stofnana og í dagdvöl.
  • Annars stigs heilbrigðisþjónusta: Heilbrigðisþjónusta sem veitt er á sjúkrahúsum, heilbrigðis­stofn­unum og starfsstofum heilbrigðisstarfsmanna samkvæmt ákvörðun ráðherra eða samningum sem gerðir eru í samræmi við ákvæði VII. kafla laga um heilbrigðisþjónustu og lög um sjúkra­trygg­ingar og önnur þjónusta sem að jafnaði er ekki veitt á heilsugæslustöðvum og fellur ekki undir þriðja stigs heilbrigðisþjónustu.
  • Þriðja stigs heilbrigðisþjónusta: Heilbrigðisþjónusta sem veitt er á sjúkrahúsi og krefst sér­stakrar kunnáttu, háþróaðrar tækni, dýrra og vandmeðfarinna lyfja og aðgengis að gjörgæslu.
Sjá einnig: