Framkvæmdasjóður aldraðra
Framkvæmdasjóður aldraðra starfar á grundvelli laga um málefni aldraðra og er í vörslu heilbrigðisráðuneytisins. Sjóðurinn er fjármagnaður með sérstöku gjaldi sem skattstjórar leggja á þá sem skattskyldir eru á aldrinum 16-70 ára, samkvæmt lögum um tekjuskatt. Sjóðnum er ætlað að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land og skal fé úr honum varið til byggingar stofnana fyrir aldraða, þjónustumiðstöðva og dagdvala, að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar á slíku húsnæði og til viðhalds húsnæðis dagdvalar-, dvalar- og hjúkrunarheimila, auk annarra verkefna sem stuðla að uppbyggingu öldrunarþjónustu. Nánar er kveðið á um hlutverk sjóðsins í reglugerð um Framkvæmdasjóð aldraðra nr. 468/2014
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra annast stjórn sjóðsins. Nefndin gerir árlega tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr sjóðnum og skal umsóknum raðað í forgangsröð í samræmi við þörf á hverjum stað. Sjá nánar um stjórnina.
Umsóknir um framlög úr sjóðnum
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir reglulega eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Í umsóknareyðublöðum á umsóknarvef STJR kemur fram hvaða skilyrði þarf að uppfylla til þess að umsókn komi til greina, hvaða upplýsingar þurfa að koma fram og hvaða fylgigagna er krafist.
Sjá einnig:
Lög og reglugerðir
Lög um málefni aldraðra nr. 125/1999Reglugerð um stofnanaþjónustu fyrir aldraðaReglugerð um Framkvæmdasjóð aldraðraReglugerð um dagdvöl aldraðraÚthlutanir úr sjóðnum
Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2026Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2025Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2024Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2023Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2022Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2021Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2020Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2019Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2018Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2017Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2016Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2015Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2014Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2013Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2012Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2011Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2010Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra vorið 2009Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra haustið 2009Úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2008Yfirlit yfir úthlutanir úr Framkvæmdasjóði aldraðra á árunum 2000 - 2010
Öldrunarmál