23 Sjúkrahúsþjónusta
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.
Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 23 Sjúkrahúsþjónusta árið 2027 eru áætluð 196.078,1 m.kr. og lækka um 4.440,6 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða sem svarar til 2,3%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 3.511,0 m.kr. milli ára eða sem svarar til 1,8%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.
Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér að framlög ársins til Nýs Landspítala eru lækkuð vegna uppsafnaðra heimilda, afkomubætandi ráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum og fækkun stöðugilda hjá ríkinu, um 1% af heildarfjölda þar sem lögð verður áhersla á að hlífa framlínustörfum innan heilbrigðisþjónustunnar. Þá er almennt aðhald lagt á málefnasviðið, m.a. til að ná markmiðum ríkisstjórnarinnar um afkomu ríkissjóðs á árinu 2027.
Hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
23.10 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta
Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Hlutverk Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri er að veita heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma samræmist skyldu slíks sjúkrahúss, m.a. sérfræðiþjónustu í nær öllum viðurkenndum greinum læknisfræði, hjúkrunarfræði og eftir atvikum öðrum greinum heilbrigðisvísinda sem stundaðar eru hér á landi, með aðgengi að stoðdeildum og rannsóknardeildum.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Efla mönnun í heilbrigðisþjónustu | ||
| Áfram unnið að lifandi mælaborði um greiningu á mönnun heilbrigðisþjónustunnar. | Heilbrigðisráðuneyti | Innan ramma |
| Áfram unnið að eflingu sérnáms heilbrigðisstétta hérlendis til að eiga betri möguleika á að standa undir mönnun til framtíðar. | Heilbrigðisráðuneyti | 650 m.kr. |
| Markmið 2: Stytta biðtíma eftir nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu | ||
| Áfram unnið að því að koma á fót samræmdum biðlistum fyrir sem flesta þætti þjónustu innan sérgreinasjúkrahúsa. | Heilbrigðisráðuneyti, embætti landlæknis, Sjúkratryggingar Íslands, Landspítali og Sjúkrahúsið á Akureyri | Innan ramma |
| Áframhaldandi vinna við útvistun þeirra verkefna sem leysa má á öðrum þjónustustigum en sérgreinasjúkrahúsum og auka þannig getu sérgreinasjúkrahúsa til að anna þeim verkefnum sem þau ein geta leyst. | Heilbrigðisráðuneyti, Landspítali, Sjúkrahúsið á Akureyri, heilsugæslur og Sjúkratryggingar Íslands | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 169.633,9 m.kr. og lækkar um 5.671,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 6.863,5 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 1.000 m.kr. vegna reksturs nýrrar matsdeildar við bráðamóttökuna í Fossvogi.
- Reiknaður raunvöxtur í veittri þjónustu innan málaflokksins vegna fjölgunar og öldrunar þjóðarinnar er 2.223,5 m.kr.
- Fjárheimild málaflokksins er lækkuð um 1.640 m.kr. í samræmi við framkvæmdaáætlun Nýs Landspítala.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 910,9 m.kr. vegna styrkingar vegna kjarasamninga lækna.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 650 m.kr. til að styrkja umgjörð og framkvæmd sérnáms lækna. Hluti fjármagnsins verður fluttur á aðra málaflokka við 2. umræðu fjárlaga.
- Fjárheimild málaflokksins hækkar um 200 m.kr. vegna hækkunar á DRG-potti til að tryggja að Sjúkratryggingar geti greitt fyrir umframframleiðslu samkvæmt samningi um þjónustutengda fjármögnun við Landspítala, Sjúkrahúsið á Akureyri og Heilbrigðisstofnun Vesturlands.
- Millifærðar eru á málaflokkinn 89 m.kr. vegna niðurfellinga þjónustusamninga Landspítala við Sjúkratryggingar, fjárveitingin er færð í framleiðslugrunn spítalans.
- Millifærðar eru á málaflokkinn 252,5 m.kr. vegna ýmissa verkefna sem flytjast til Landspítala, geðheilsuteymi fanga, geðheilbrigðisþjónusta í neyðarvistun Stuðla, uppbygging fjarheilbrigðisgeðþjónustu og sérhæfðrar geðþjónustu fyrir aldraða auk fósturvísagreininga.
- Fjárheimild málaflokksins lækkar um 313,5 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.
- Millifærðar eru 197,4 m.kr. á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins vegna flutnings Heyrnar- og talmeinastöðvar til stofnunarinnar.
- Útgjaldaheimild málaflokksins hækkar um 255 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjum.
- Almenn aðhaldskrafa á málaflokkinn nemur 505,2 m.kr.
- Sértæk aðhaldskrafa á málaflokkinn nemur 8.799,3 m.kr. Þar af eru 8.000 m.kr. vegna lækkunar á framlögum til Nýs Landspítala árið 2027 vegna uppsafnaðra heimilda og mun lækkunin ekki hafa áhrif á framkvæmdahraða, aðhald vegna opinberra innkaupa er 534,2 m.kr. sem skiptist hlutfallslega milli Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri og 528 m.kr. vegna fækkunar stöðugilda hjá ríkinu um 1% af heildarfjölda þar sem lögð verður áhersla á að hlífa framlínustörfum innan heilbrigðisþjónustunnar.
23.20 Almenn sjúkrahúsþjónusta
Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisstofnana í heilbrigðisumdæmum. Þess má geta að í lögum um heilbrigðisþjónustu heitir almenn sjúkrahúsþjónusta nú annars stigs þjónusta. Landspítalinn og Sjúkrahúsið á Akureyri veita annars stigs sjúkrahúsþjónustu fyrir íbúa sem búa í heilbrigðisumdæmum höfuðborgarsvæðisins og á Norðausturlandi en allar fjárveitingar til þessara tveggja stofnana eru undir málaflokki 23.10.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Efla aðgang sjúklinga að skilgreindri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu á heilbrigðisstofnunum | ||
| Vinna greiningu á núverandi sérhæfðri þjónustu sem veitt er í umdæmi heilbrigðisstofnana og leggja mat á þjónustuþörf. Styrkja heilbrigðisstofnanir og Sjúkratryggingar til að gera samninga um sérfræðilæknisþjónustu á heilbrigðisstofnunum til lengri tíma. | Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands | Innan ramma |
| Vinna að framkvæmd stefnu um fjarheilbrigðisþjónustu, ekki síst hvað varðar aukna samræmingu stafrænnar fjarheilbrigðisþjónustu innan opinbera heilbrigðiskerfisins. | Heilbrigðisráðuneyti | Innan ramma |
| Markmið 2: Sjúklingar komist í liðskiptaaðgerðir innan ásættanlegs biðtíma miðað við viðmið embættis landlæknis | ||
| Innleiðingu á þjónustutengdri fjármögnun á sjúkrasviði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands er ætlað að styðja við aukin afköst, aukin gæði og stuðla að gegnsæi fjármögnunar. | Heilbrigðisráðuneyti | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 21.198,4 m.kr. og hækkar um 375,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 963,6 m.kr.
Ekki er um neina breytingu á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Reiknaður raunvöxtur í veittri þjónustu innan málaflokksins vegna fjölgunar og öldrunar þjóðarinnar er 300,5 m.kr.
- Útgjaldaheimild málaflokksins hækkar um 299,7 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjum.
- Sérstakar aðhaldsráðstafanir eru 157,6 m.kr. Þar af er hagræðing í opinberum innkaupum 94,7 m.kr. og fækkun stöðugilda hjá ríkinu um 1% af heildarfjölda, þar sem lögð verður áhersla á að hlífa framlínustörfum innan heilbrigðisþjónustunnar, 62,9 m.kr. Almennt aðhald nemur samtals 67 m.kr.
23.30 Erlend sjúkrahúsþjónusta
Framkvæmd málaflokksins er í höndum Sjúkratrygginga Íslands sem sjá um samningagerð við erlend sjúkrahús ásamt því að hafa milligöngu um greiðslur fyrir heilbrigðisþjónustu milli landa þar sem milliríkjasamningar gilda. Til erlendrar sjúkrahúsþjónustu telst heilbrigðisþjónusta sem veitt er erlendis og greitt er fyrir af Sjúkratryggingum í samræmi við reglugerðir um þjónustuna. Um er að ræða nauðsynlega heilbrigðisþjónustu sem ekki er í boði á Íslandi, nauðsynlega heilbrigðisþjónustu sem er ekki veitt á Íslandi innan tímamarka og heilbrigðisþjónustu yfir landamæri innan EES-lands (landamæratilskipun). Að auki heyrir sjúkrakostnaður vegna veikinda og slysa erlendis undir málaflokkinn.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
| Helstu verkefni 2027 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu |
| Markmið 1: Aðgerðir sem áður voru gerðar erlendis á grundvelli biðtímareglugerðar eru framkvæmdar hérlendis | ||
| Vinna að undirbúningi þess að innlendar stofnanir hafi fullnægjandi afkastagetu og skilvirkni til að taka við auknum verkefnum með hagkvæmum hætti. Jafnframt verður að tryggja að aðgerðum sem fjármagnaðar eru með föstum fjárveitingum fækki ekki. | Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands, sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 5.245,8 m.kr. og hækkar um 855,3 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa-, gengis- og verðlagsbreytingum en þær hækka um 124,5 m.kr.
Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild til málaflokksins hækkar um 85,3 m.kr. vegna raunvaxtar, fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.
- Fjárheimild til málaflokksins hækkar um 800 m.kr. til að styrkja brýna meðferð erlendis.
- Millifærðar eru 30 m.kr. á málaflokk 23.10 Sérhæfð sjúkrahúsþjónusta vegna fósturvísagreininga sem Landspítali mun nú sinna.
Fjárlög fyrir árið 2027