24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í fjóra mála­flokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og megin­markmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. 

Heildargjöld málefnasviðs 24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa árið 2027 eru áætluð 115.246,4 m.kr. og aukast um 6.193,3 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða sem svarar til 5,9%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 11.012,5 m.kr. milli ára eða sem svarar til 10,6%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun mál­efnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstaf­anir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum og fækkun stöðugilda hjá ríkinu, um 1% af heildarfjölda, þar sem lögð verður áhersla á að hlífa framlínustörfum innan heilbrigðis­þjónustunnar. Þá er almennt aðhald lagt á málefnasviðið, m.a. til að ná markmiðum ríkisstjórn­arinnar um afkomu ríkissjóðs á árinu 2027.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

24.10 Heilsugæsla

Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður notenda heilbrigðisþjónustunnar en þar er veitt fyrsta stigs og eftir atvikum annars stigs heilbrigðisþjónusta. Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Heilsugæslu höfuðborgar­svæð­isins, heilsugæslusviða heilbrigðis­stofn­ana heilbrigðisumdæma og einkarekinna heilsu­gæslu­stöðva.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Greitt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu óháð aldri
Umbótaverkefni í geðheilbrigðisþjónustu barna. Breytt skipulag þjónustu og bættir verkferlar, aukin stafræn þjónusta, betri nýting mannauðs og aukið samstarf milli stofnana og kerfa um greiningarferli taugaþroska­raskana.Heilbrigðisráðuneyti og heilsugæslur um allt landInnan ramma
Umbótaverkefni í geðheilbrigðisþjónustu fullorðinna. Breytt skipulag og verkferlar, aðgengileg lágþröskulda­þjónusta og umbóta- og samstarfsverkefni milli stofnana.Heilbrigðisráðuneyti og heilsugæslur um allt landInnan ramma
Markmið 2: Skjólstæðingar með heimilislækni eða skráðir í fast teymi á heilsugæslustöð
Unnið verður að heildrænu skipulagi á sérnámi lækna.HeilbrigðisráðuneytiInnan ramma
Unnið verður að því að auka teymisvinnu í heilsu­gæsluþjónustu.Heilbrigðisráðuneyti og heilsugæslur um allt landInnan ramma
Markmið 3: Erindi sem afgreidd eru á heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu – hlutdeild hverrar heilsugæslustöðvar
Unnið verður að því að auka hlutdeild með því að bæta og samræma ferla við bókun tíma í gegnum Island.is og forgangsraða erindum í samræmi við bráðleika.Heilbrigðisráðuneyti og heilsugæslur um allt landInnan ramma
Unnið verður að því að fjölga fjarviðtölum í samræmi við reglugerð um fjarheilbrigðisþjónustu og hækka hlut­deild.Heilbrigðisráðuneyti og heilsugæslur um allt landInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 56.573,4 m.kr. og hækkar um 2.727,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 2.496,7 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Reiknaður raunvöxtur á veittri þjónustu innan málaflokksins er 845 m.kr.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 1.000 m.kr. til að mæta áskorunum sem felast í öldrun þjóðarinnar, vinna niður biðlista o.fl.
  3. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 240 m.kr. tímabundið í eitt ár í aðgerðir vegna ofbeldis barna.
  4. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 477,5 m.kr. vegna styrkingar vegna kjara­samninga lækna.
  5. Millifærðar eru á málaflokkinn 786,1 m.kr. vegna flutnings Heyrnar- og talmeina­stöðvar Íslands (HTÍ) til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
  6. Millifærðar eru á málaflokkinn 22 m.kr. vegna flutnings innrennslisþjónustu Land­spítala á beinþéttnilyfjum til heilsugæslunnar. Þar að auki eru 3,5 m.kr. færðar í verk­efnið innan málaflokks.
  7. Millifærðar eru á málaflokkinn 15 m.kr. til styrkingar fjölskylduteymis innan Geð­heilsumiðstöðvar barna.
  8. Millifærðar eru 44 m.kr. á málefnasvið 23 Sjúkrahúsþjónusta vegna uppbyggingar sérhæfðrar geðþjónustu fyrir aldraða.
  9. Millifærðar eru 28,5 m.kr. á málefnasvið 23 Sjúkrahúsþjónusta vegna uppbyggingar og innleiðingar á fjarheilbrigðisgeðþjónustu á þriðja þjónustustigi.
  10. Millifærðar eru 100 m.kr. á málefnasvið 23 Sjúkrahúsþjónusta þar sem Landspítalinn tekur við rekstri geðheilsuteymis fanga af Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
  11. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 312,5 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.
  12. Útgjaldaheimild málaflokksins hækkar um 234,8 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjum.
  13. Sértæk aðhaldskrafa á málaflokkinn nemur 219,2 m.kr. vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum og fækkun stöðugilda hjá ríkinu, um 1% af heildarfjölda, þar sem lögð verður áhersla á að hlífa framlínustörfum innan heilbrigðisþjónustunnar. Þá nemur almenn aðhaldskrafa 188,4 m.kr.

24.20 Sérfræðiþjónusta og hjúkrun

Starfsemi málaflokksins er í höndum sjálfstætt starfandi sérgreinalækna, tannlækna, hjúkr­unarfræðinga, sálfræðinga og ljósmæðra. Viðkomandi fagaðilar veita sérhæfða þjónustu utan sjúkrahúsa. Þjónustan er almennt veitt á grundvelli samninga Sjúkratrygginga Íslands og nær til rannsókna og meðferða.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Að efla þróun á starfsemi sérgreinalækna utan sjúkrahúsa
Unnið að þróun á þjónustu sérgreinalækna í gegnum samstarfssamning SÍ og LÍ. Sérstaklega er horft til verklags í tengslum við þverfagleg teymi og forgangs­röðun þjónustu m.t.t. þjónustuþarfar á landsbyggðinni. Sjúkratryggingar Íslands og Læknafélag Íslands Innan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 41.193,5 m.kr. og hækkar um 2.176,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.683,0 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 745,6 m.kr. vegna raunvaxtar, fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.
  2. Millifærðar eru 89 m.kr. á málefnasvið 23 Sjúkrahúsþjónusta. Um er að ræða fjárveit­ingar vegna þjónustusamninga sem falla niður vegna þjónustu sem veitt er á Land­spítala. Aðgerðir, m.a. vegna geislameðferðar, mænuörvunar o.fl.
  3. Fjárheimild málaflokksins er hækkuð um 993 m.kr. til að mæta aukinni þjónustuþörf á læknislið sjúkratrygginga.
  4. Fjárheimild málaflokksins er hækkuð um 527 m.kr. til að mæta aukinni þjónustuþörf á tannlæknalið sjúkratrygginga.

24.30 Sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun

Starfsemi málaflokksins er í höndum sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og talmeinafræðinga sem veita þjónustu á grundvelli samninga við Sjúkratryggingar Íslands.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Biðtími eftir þjónustu sjúkraþjálfara er < 30 dagar skv. miðlægum biðlista
Gerð miðlægrar biðlistalausnar eftir þjónustunni.Sjúkratryggingar ÍslandsInnan ramma
Kortlagning á helstu markhópum þjónustunnar og eftirfylgni með nýju verklagi í kjölfar afnáms tilvísana.Sjúkratryggingar ÍslandsInnan ramma
Markmið 2: Fjölga sjálfstætt starfandi talmeinafræðingum sem eru skráðir í miðlægan gagnagrunn
Miðlæg biðlistalausn gerð aðgengileg sjálfstætt starfandi talmeinafræðingum.Sjúkratryggingar ÍslandsInnan ramma
Krafa um skráningu í rafræna sjúkraskrá sett inn í samning Sjúkratrygginga Íslands við sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga.Sjúkratryggingar ÍslandsInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 11.985,5 m.kr. og hækkar um 1.197,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 416,3 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

Fjárheimild málaflokksins hækkar um 187,7 m.kr. vegna raunvaxtar, fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 187,7 m.kr. vegna raunvaxtar, fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.
  2. Millifærðar eru 588,7 m.kr. á málaflokk 24.10 Heilsugæsla vegna flutnings Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
  3. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 1.600 m.kr. vegna aukinnar þjónustu í sjúkraþjálfunarlið sjúkratrygginga.
  4. Almennt aðhald á málaflokkinn nemur 1,5 m.kr.

24.40 Sjúkraflutningar

Til sjúkraflutninga teljast allir flutningar sjúkra og slasaðra utan sjúkrahúsa, á landi og í lofti. Þjónustan er veitt af rekstraraðilum sem starfa samkvæmt samningum við Sjúkra­tryggingar Íslands eða á vegum heilbrigðisstofnana. Undir þennan málaflokk falla einnig ferðir innan lands sem greiddar eru á grundvelli reglugerðar um ferðakostnað.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Skjótari viðbrögð við bráðaútköllum í dreifbýli
Stilla upp þjónustuviðmiðum og vinna útkallsáætlun sem tilgreinir hvaða þjónusta sé veitt á útkallssvæði viðkom­andi þjónustuveitanda.Heilbrigðisráðuneyti, Landspítali og framkvæmdaraðilar sjúkraflutningaInnan ramma
Markmið 2: Betri faglegur stuðningur á vettvangi
Ljúka innleiðingu á stafrænni skráningu í sjúkra­flutningum.Heilbrigðisráðuneyti, Neyðarlínan og framkvæmdaraðilar sjúkraflutningaInnan ramma
Vinna áfram að því að flytja nám í sjúkraflutningum í opinbera skólakerfið.Heilbrigðisráðuneyti, ráðuneyti menntamála og Sjúkrahúsið á AkureyriInnan ramma
Tryggja faglegan sérhæfðan stuðning á vettvangi með fjarheilbrigðislausnum.LSH, Neyðarlínan og framkvæmdaraðilar sjúkraflutningaInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 5.494 m.kr. og hækkar um 91,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 223,2 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 97 m.kr. vegna raunvaxtar, fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.
  2. Fjárheimild til málaflokksins hækkar um 80 m.kr. til að mæta aukinni þjónustu á liðnum.
  3. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 37 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.
  4. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 48,6 m.kr.