25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Heildargjöld málefnasviðs 25 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta árið 2027 eru áætluð 99.055,9 m.kr. og aukast um 3.322,2 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða sem svarar til 3,6%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 7.259,9 m.kr. milli ára eða sem svarar til 7,9%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins eru tvenns konar; almenn og sértæk. Málaflokkur 25.10 Hjúkrunar- og dvalarrými ber ekki almenna aðhaldskröfu en málaflokkur 25.20 Endurhæfingarþjónusta gerir það. Sértækar aðhaldsráðstafanir vegna aukinna hagræðingar í opinberum innkaupum eru færðar á málaflokk 25.10.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

25.10 Hjúkrunar- og dvalarrými

Undir málaflokkinn fellur uppbygging og starfsemi hjúkrunar- og dvalarrýma á hjúkrunarheimilum og á heilbrigðisstofnunum. Einnig dagdvöl, almenn og sérhæfð og Framkvæmdasjóður ­aldraðra. Starfsemi málaflokksins er í höndum sjálfseignarstofnana, sveitarfélaga, hlutafélaga og heil­brigðis­­stofnana. Málaflokkurinn heyrir undir tvö ráðuneyti; heilbrigðisráðuneytið sem hefur með höndum heilbrigðisþjónustu í hjúkrunarrýmum, dvalarrýmum og dagdvalarrýmum; félags- og húsnæðismálaráðuneytið sem sér um stjórn, skipulag og stefnumótun öldrunarmála fyrir landið í heild annað en heilbrigðisþjónustu. Í því felst m.a. uppbygging hjúkrunarheimila og greiðsla húsaleigu. Þá hefur félags- og húsnæðismálaráðuneytið umsjón með Framkvæmdasjóði aldraðra.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Stytta biðtíma eftir hjúkrunarrýmum
Ljúka húsnæðisuppbyggingu fyrir 264 hjúkrunarrými.Félags- og húsnæðismálaráðuneyti895 m.kr. í húsaleigu.
Rekstur 192 nýrra hjúkrunarrýma.Heilbrigðisráðuneyti937,2 m.kr.
Rekstur 24 skammtímarýma í Hlévangi (biðrými).Heilbrigðisráðuneyti520 m.kr.
Gerð nýrra samninga við sveitarfélög um uppbyggingu hjúkrunarheimila.Félags- og húsnæðismálaráðuneytiInnan ramma
Markmið 2: Heildræn yfirsýn yfir eftirspurn og þjónustuþarfir einstaklinga sem þurfa dagdvöl
Kortleggja þörf þjónustuþega fyrir sveigjanleika í dvalartíma.Sjúkratryggingar ÍslandsInnan ramma
Innleiðing  samræmds matstækis til grunnmats á færni og kortlagningar á þjónustuþörf einstaklinga (WHODAS 2.0).Heilbrigðisráðuneytið, dagdvalirInnan ramma
Samræmd umsókn og miðlægur biðlisti í dagdvalir.Heilbrigðisráðuneytið, dagdvalirInnan ramma
Markmið 3: Fjölgun skammtíma hjúkrunarrýma (áður hvíldarrými)
Fjölga hjúkrunarrýmum sem eru nýtt sem skammtímahjúkrunarrými til endurhæfingar og uppvinnslu (hvíldarrými).Heilbrigðisráðuneyti og SjúkratryggingarInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 88.887,3 m.kr. og hækkar um 3.397,8 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða 4,1% auk launa- og verðlagsbreytinga sem nema 3.476,7 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 937,2 m.kr. til reksturs nýrra hjúkrunarrýma sbr. markmið nr. 1.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 520 m.kr. vegna reksturs 24 nýrra skammtímarýma (biðrýma) á Hlévangi í Reykjanesbæ. Rýmin opna í september 2026 en fjárheimild fæst varanlega í fjárlögum 2027.
  3. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 1.029,6 m.kr. vegna leigu á fasteignum nýrra hjúkrunarrýma sbr. markmið nr. 1.
  4. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 240 m.kr. til þess að fjárveiting til Fram­kvæmdasjóðs aldraðra samsvari áætluðum tekjum af gjaldi í sjóðinn.
  5. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 250 m.kr. þar sem tímabundin lækkun á dvalarrýmum gengur til baka.
  6. Greiðslur frá heimilisfólki hjúkrunarheimila hækka um 867,9 m.kr. skv. útkomuspá Sjúkratrygginga Íslands.
  7. Fjárheimild málaflokksins er hækkuð um 146,7 m.kr. vegna breytinga á rekstrartekjuáætlunum stofnana.
  8. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 55,7 m.kr. og er þar um að ræða sértæka hagræðingu í opinberum innkaupum. Málaflokkurinn er ekki látinn bera almenna aðhaldskröfu.
  9. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 350 m.kr. vegna tímabundinnar lækkunar á fjárheimild málaflokksins árið 2026 sem kemur til baka.

25.20 Endurhæfingarþjónusta

Undir málaflokkinn falla meðferðar- og endurhæfingarstofnanir sem hafa það að markmiði að styðja fólk til sjálfsbjargar, vinnufærni og sjálfstæðrar búsetu heima sem lengst. Starfsemi málaflokksins er í höndum einkarekinna heilbrigðisstofnana, m.a. á grundvelli samninga við Sjúkratryggingar Íslands (t.d. Reykjalundar, Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands og SÁÁ).

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Samfella í endurhæfingarþjónustu
Stigskipting á þjónustu endurhæfingarúrræða í samræmi við skilgreiningu WHO.HeilbrigðisráðuneytiInnan ramma
Markmið 2: Mörkun árangurs í endurhæfingarþjónustu
Þróun staðlaðs árangursmats í endurhæfingarþjónustu. HeilbrigðisráðuneytiInnan ramma
Markmið 3: Greitt aðgengi að meðferðarúrræði vegna vímuefnavanda
Aukið aðgengi að fráhvarfsmeðferð fyrir einstaklinga sem þurfa endurhæfingu vegna áfengis- eða annars vímuefnavanda.HeilbrigðisráðuneytiðInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 10.168,6 m.kr. og lækkar um 75,6 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026. Almennar launa- og verðlagsbreytingar nema 461,0 m.kr. og því nemur heildar hækkun 385,4 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Tímabundið framlag árið 2026 að upphæð 1.044,5 m.kr. er gert varanlegt. Framlaginu er ætlað að efla meðferðarúrræði vegna fíknivanda hjá SÁÁ, Krýsuvík og Hlaðgerðarkoti. Einnig til að styrkja önnur endurhæfingarúrræði s.s. hjá Reykjalundi, NLFÍ, Ljósinu, Sjálfsbjörg, Alzheimersamtökunum og Parkinsonsamtökunum. Framlagið er því óbreytt á milli ára.
  2. Millifærðar eru 50 m.kr. af málaflokknum á málaflokk 23.10 Sérhæfð Sjúkrahúsþjónusta þar sem Kvenna- og barnasvið LSH hefur tekið að sér að útfæra og sinna geðheilbrigðisþjónustu í neyðarvistun Stuðla.
  3. Almenn aðhaldskrafa málaflokksins nemur 25,6 m.kr. Samningsupphæðir við endurhæfingastofnanir lækka sem því nemur.