26 Lyf og lækningavörur

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Heildargjöld málefnasviðs 26 Lyf og lækningarvörur árið 2027 eru áætluð 47.613,1 m.kr. og aukast um 2.437,4 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða sem svarar til 5,5%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 3.020,1 m.kr. milli ára eða sem svarar til 6,8%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Almennt aðhald er lagt á málefnasviðið m.a. til að ná markmiðum ríkisstjórnarinnar um afkomu ríkissjóðs á árinu 2027.  

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

26.10 Lyf

Lyfjamál fjalla m.a. um framleiðslu, dreifingu, notkun og sölu lyfja og skyldra vara. Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Landspítala, Lyfjastofnunar og Sjúkratrygginga Íslands. Embætti landlæknis sér um eftirlit með lyfjaávísunum.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Minnka ofnotkun ávanabindandi lyfja
Haldið áfram með tilraunaverkefni um niðurtröppun ávanabindandi lyfja. Meðal annars þróun  á  niðurtröppunar-appi og lyfjafræðilegri þjónustu.HeilbrigðisráðuneytiInnan ramma.
Áfram unnið að því að setja hvata inn í greiðslulíkan heilsugæslunnar þannig að heilsugæslustöðvum sé umbunað fyrir að trappa niður notkun ávanabindandi lyfja.Heilbrigðisráðuneyti Innan ramma
Markmið 2: Aukin gæði við lyfjaval og afhendingu
Haldið áfram að innleiða lyfjalista til að styðja markvisst og hagkvæmt val lyfja í heilsugæslu.Þróunarmiðstöð heilsugæslunnarInnan ramma
Markmið 3: Lækkun lyfjakostnaðar
Haldið áfram endurskoðun á útgáfu lyfjaskírteina.Heilbrigðisráðuneyti og SjúkratryggingarInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 38.373,5 m.kr. og hækkar um 2.259,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa-, gengis- og verðlagsbreytingum en þær nema 361,5 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 711,6 m.kr. vegna raunvaxtar, fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um samanlagt 1.607,3 m.kr. Þar af eru 800 m.kr. til styrkingar á leyfisskyldum lyfjum og 807,3 m.kr. til styrkingar á almennum lyfjum.
  3. Almennt aðhald á málaflokkinn nemur 59,3 m.kr.

26.30 Hjálpartæki

Meginverkefni málaflokksins eru úthlutun hjálpartækja og að styrkja sjúkratrygginga almannatrygginga til að afla nauðsynlegra hjálpartækja með það að markmiði að draga úr áhrifum fötlunar eða færniskerðingar á líf notenda. Starfsemi málaflokksins er í höndum Sjúkratrygginga Íslands sem sjá að mestu um úthlutun hjálpartækja.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Einfalda aðgang fólks að hjálpartækjum og tryggja jafnræði við notkun þeirra
Endurskoðun reglugerðar um styrki vegna hjálpartækja.HeilbrigðisráðuneytiInnan ramma
Endurskoðun mats á þörf fyrir hjálpartæki. HeilbrigðisráðuneytiInnan ramma
Hefja vinnu við gerð reglugerðar um heyrnartæki og hjálpartæki vegna heyrnarskerðingar og heyrnarleysis.HeilbrigðisráðuneytiInnan ramma
Markmið 2: Bæta aðgang að heildstæðum upplýsingum um hjálpartæki
Efla Island.is sem upplýsingalind um hjálpartæki.HeilbrigðisráðuneytiInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 9.239,6 m.kr. og hækkar um 177,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 221,2 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 177,8 m.kr. vegna fjölgunar íbúa og öldrunar þjóðarinnar.