32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra, dómsmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra. Það skiptist í fjóra málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2025–2027. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun. Markmið og mælikvarða sem sett hafa verið á málefnasviðinu má sjá á sérstöku mælaborði á vef Stjórnarráðsins.

 

Breytingar á útgjaldaramma eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma á milli áranna 2026 og 2027

Heildargjöld málefnasviðs 32 Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála árið 2027 eru áætluð 14.642,7 m.kr. og lækka um 432,6 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2026 eða sem svarar til 3,0%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 149,2 m.kr. milli ára eða sem svarar til 1,0%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins og þeim útgjaldaramma sem settur var í fjármálaáætlun 2027–2031. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun.

Aðhaldsmarkmið málefnasviðsins felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhalds­ráðstafanir vegna aukinnar hagræðingar í opinberum innkaupum og fækkun stöðugilda hjá ríkinu, um 1% af heildarfjölda þar sem lögð verður áhersla á að hlífa framlínustörfum innan heilbrigðisþjónustunnar. Þá er almennt aðhald lagt á málaflokka m.a. til að ná markmiðum ríkisstjórnarinnar um afkomu ríkissjóðs á árinu 2027.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2025 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

 

32.10 Lýðheilsa, forvarnir og eftirlit

Helstu verkefni málaflokksins eru á sviði lýðheilsu í heilbrigðisþjónustu þar sem megináhersla er á heilsueflingu og forvarnir, auk þess sem verkefni málaflokksins eru geislavarnir, sóttvarnir, viðbúnaður við heilsuvá, eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsfólki og að tryggja greitt aðgengi að lyfjum og lækningatækjum. Heilbrigðisráðuneytið fer með stjórn málaflokksins og undir málaflokkinn falla embætti landlæknis, Lyfjastofnun, Geislavarnir ríkisins, Lýðheilsusjóður og verkefni er varða viðbúnað vegna farsótta.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Efling heilsu og heilbrigðra lifnaðarhátta
Vinna markvisst að því að auka þátttöku í skimun fyrir krabbameinum.Heilbrigðisráðuneytið og Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimanaInnan ramma
Undirbúa og framkvæma landskönnun á mataræði barna og unglinga.Heilbrigðisráðuneytið og embætti landlæknis30 m.kr.
Ísland sækir um þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um vöktun á offitu barna.Heilbrigðisráðuneytið og embætti landlæknisInnan ramma
Hefja vitundar- og hvatningarverkefni um helstu áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma.Heilbrigðisráðuneytið og embætti landlæknisInnan ramma
Markmið 2: Aukin gæði í þjónustu og öryggi sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna
Lagt verður fram frumvarp  um Stafræna heilsu sem skilgreinir sameiginlega stafræna innviði heilbrigðiskerfisins.HeilbrigðisráðuneytiðInnan ramma
Lagt verður fram frumvarp um viðbrögð við lyfjaskorti.Heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis og heilbrigðisstofnanirInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 3.309,4 m.kr. og hækkar um 44,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 138,8 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 10,2 m.kr. vegna styrkingar vegna kjarasamninga lækna.
  2. Útgjöld málaflokksins hækka um 72,5 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekju-áætlunum stjórnsýslustofnana.
  3. Millifærðar eru 30 m.kr. á embætti landlæknis vegna landskönnunar á mataræði barna og ungmenna og 50 m.kr. vegna lagfæringu á flutningi fjárheimilda í tengslum við stofnun Stafrænnar heilsu.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 25 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.
  5. Almennt aðhald í starfsemi málaflokksins er 52,7 m.kr.
  6. Sértæk aðhaldskrafa á málaflokkinn nemur 40,9 m.kr. Þar af eru 34,6 m.kr. vegna 1% fækkunar stöðugilda hjá ríkinu og 6,3 m.kr. vegna sértækrar hagræðingar í opinberum innkaupum.

32.20 Jafnréttismál

Undir málaflokkinn falla aðgerðir hins opin­bera á sviði kynjajafnréttis og jafnréttis í víðtækri merkingu auk þess sem mannréttindamál falla einnig undir málaflokkinn. Kynjajafnrétti er for­gangs­mál þar sem jafnréttismál verða ávallt í forgrunni ákvarðanatöku. Lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, lög um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020, lög nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, og lög nr. 86/2018, um jafna meðferð á vinnu­­markaði (mismununarlöggjöfin) teljast til helstu laga málaflokksins auk laga um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019, en málefni hinsegin fólks falla hér undir. Starfsemi Jafnréttisstofu tilheyrir málaflokknum.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Launajafnrétti verði náð - kynbundnum launamun verði útrýmt
Innleiðing laga um skýrslugjöf um kynbundinn launamun nr. 53/2026 sem vinna gegn launamisrétti á grundvelli kyns.DómsmálaráðuneytiðInnan ramma
Þróa virðismatskerfi starfa í þágu kynjajafnréttis.DómsmálaráðuneytiðInnan ramma
Markmið 2: Sporna við kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi
Aðgerðaáætlun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundu ofbeldi og áreitni fyrir árin 2026–2030.DómsmálaráðuneytiðInnan ramma
Landsáætlun gegn kynbundnu ofbeldi gagnvart konum. 2026 – 2030.DómsmálaráðuneytiðInnan ramma
Markmið 3: Réttindi hingsegin fólks tryggð
Framfylgd verkefna í aðgerða-áætlun í málefnum hinsegin fólks fyrir árin 2026 – 2029.DómsmálaráðuneytiðInnan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 403,9 m.kr. og lækkar um 10,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 15,2 m.kr.

Engar breytingar eru á hagrænni skiptingu innan málaflokksins.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 6,8 m.kr. og er útfært með hlutfallslegri skiptingu niður á stofnanir og verkefni málaflokks.

32.30 Stjórnsýsla heilbrigðismála

Undir málaflokkinn heyra m.a. aðalskrifstofa heilbrigðisráðuneytisins, Sjúkratryggingar Íslands og Vísindasiðanefnd. Sjúkratryggingar Íslands sjá um framkvæmd annarra málaflokka er falla undir málefnasvið um sjúkrahúsþjónustu (23), heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa (24), hjúkrunar- og endurhæfingarrými (25) og lyf og lækningatæki (26). Undir málaflokkinn heyra einnig stafræn málefni. Verkefni heilbrigðisráðuneytisins eru nánar tilgreind í forsetaúrskurði nr. 5/2026.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá helstu verkefni sem áformað er að ráðast í á árinu 2027 og hvaða markmið þau styðja við en markmið og mælikvarðar í hverjum málaflokki eru birt á sérstöku mælaborði á vefsíðu Stjórnarráðsins. Í framhaldi af töflunni eru dregnar fram helstu breytingar á fjármögnun verkefna frá fjárlögum ársins 2026. Þær fjárhæðir sem þar koma fram endurspegla ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2027FramkvæmdaraðiliBreyting á fjárveitingu
Markmið 1: Skilvirk stjórnsýsla heilbrigðismála
Vinna að einföldun ferla við mat á færni og heilsumati.HeilbrigðisráðuneytiðInnan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 6.430,8 m.kr. og lækkar um 387,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en hækkun vegna þeirra nemur 245,2 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Útgjöld málaflokksins lækka um 50 m.kr. vegna breytinga á sértekjuáætlun aðalskrifstofu heilbrigðisráðuneytisins.
  2. Millifærðar eru 50 m.kr. frá aðalskrifstofu heilbrigðisráðuneytisins vegna lagfæringar á flutningi fjárheimilda í tengslum við stofnun Stafrænnar heilsu.
  3. Fjárheimild málaflokks lækkar um 170 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.
  4. Almennt aðhald í starfsemi málaflokksins er 58,8 m.kr.
  5. Sértæk aðhaldskrafa á málaflokkinn nemur 60 m.kr. Þar af eru 47,9 m.kr. vegna 1% fækkunar stöðugilda hjá ríkinu og 12,1 m.kr. vegna sértækrar hagræðingar í opinberum innkaupum.

32.40 Stjórnsýsla félagsmála

Starfsemi málaflokksins er í höndum aðalskrifstofu félags- og vinnumarkaðsráðuneytis, auk þess sem rekstur úrskurðarnefndar velferðarmála, Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála og Tryggingastofnunar fellur undir málaflokkinn.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2027 er áætluð 4.498,6 m.kr. og lækkar um  78,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 182,6 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 78,5 m.kr.