Könnun á þjónustu ríkisstofnana

Tilgangur þjónustukönnunar ríkisstofnana er að meta ánægju með opinbera þjónustu og auðvelda stofnunum að skipuleggja þjónustuna þannig að hún reynist sem best. Í meðfylgjandi mælaborði má sjá heildar niðurstöður og niðurstöður stofnana sem hafa náð að minnsta kosti 50 svörum árið 2026. Mælaborðið er uppfært hálfsárslega.

Niðurstöður

Ef skýrslan birtist ekki er einnig hægt að fara beint inn á niðurstöður hennar.

Nánar um framkvæmdina

Framkvæmd þjónustukönnunar ríkisstofnana er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðuneytis. Svör eru ópersónugreinanleg.

Hver og ein stofnun ber ábyrgð á sendingu könnunarinnar. Ábendingum um þjónustu einstaka stofnana skal beina til viðkomandi stofnunar.

Notendur geta fengið könnun eftir mismunandi þjónustuleiðum. Kjósi einstaklingar ekki að fá könnun senda frá stofnun ber að heyra í viðkomandi stofnun um erindi þess efnis.

Grunnspurningar eru eftirtaldar; spurt er um heildaránægju, viðmót, hraða og áreiðanleika. Einstaka stofnanir geta bætt við spurningum eftir þörfum.

Könnunin er framkvæmd á íslensku, ensku, pólsku og íslensku táknmáli. Framkvæmdin fer í gegnum Félagsvísindastofnun.

Almennar spurningar um könnunina má senda á [email protected]. Öllum ábendingum um þjónustu einstaka stofnana skal beina til viðkomandi stofnunar.

Framkvæmd eldri kannana

2025

Alls tóku 63 stofnanir þátt í þjónustukönnun ríkisins 2025 og voru svör tæplega 140.000 talsins. Könnunin var framkvæmd á íslensku, ensku, pólsku og íslensku táknmáli. Framkvæmdin 2025 fór í gegnum Félagsvísindastofnun en hver og ein stofnun sér um að senda út könnun.

2024

Alls tóku 124 stofnanir þátt í þjónustukönnun ríkisins 2024 og voru svör um 23.000 talsins. Könnunin var framkvæmd á íslensku, ensku, pólsku og íslensku táknmáli. Framkvæmdin 2024 fór í gegnum Prósent rannsóknir bæði sem rauntímamæling (75 stofnanir) og í gegnum panel (49 stofnanir).

2023

Framkvæmdin fór fram í gegnum Maskínu í mars, apríl og maí 2023. Könnunin var send í gegnum þjóðarpanel Maskínu ásamt því að netfangakönnun var send út fyrir hluta stofnana sem erfitt er að mæla í gegnum þjóðarpanel. Fjöldi þátttakaenda var 4904 einstaklingar af öllu landinu 18 ára og eldri. Alls var spurt um 134 stofnanir. Hætt var að spyrja um ánægju með stafræna þjónustu sérstaklega þar sem mikið af þjónustu var þegar veitt stafrænt og ekki talið nauðsynlegt að skilja þar á milli.

2022

Framkvæmdin fór fram í gegnum spurningavagn Gallups á tímabilinu 7. janúar til 29. mars 2022. Fjöldi þátttakenda var 10.977 einstaklingar af öllu landinu, 18 ára og eldri, sem svara könnunum á netinu. Alls var spurt um 45 stofnanir. Könnun meðal stjórnenda var lögð fyrir á netinu vegna 8 stofnana og í úrtaki voru 408 stjórnendur hjá ríkinu.

2020

Framkvæmdin fór fram í gegnum spurningavagn Gallups á tímabilinu 20. desember 2019-14. febrúar 2020. Fjöldi þátttakenda var 5.808 manns. Alls var spurt um 33 stofnanir. Könnun meðal stjórnenda hjá ríkinu var lögð fyrir á netinu og í úrtaki voru 172 stjórnendur hjá ríkinu. Könnun meðal fyrirtækja var lögð fyrir á netinu og í úrtaki voru 1.066 aðildarfyrirtæki að Samtökum atvinnulífsins.