Opinber innkaup
Opinber innkaup eru stór hluti af hagkerfinu. Hlutfall opinberra innkaupa hefur verið metið um 14% af vergri landsframleiðslu Evrópulanda. Vörukaup, þjónustukaup, þjónustusamningar og verklegar framkvæmdir falla undir opinber innkaup.
Í ljósi umfangsins er mikilvægt að huga að því hvernig innkaupamætti er beitt. Innkaup gegna einnig hlutverki í mótun rekstrarumhverfis fyrirtækja á almennum markaði og því þurfa samskipti ríkis og markaðarins í innkaupamálum að vera markviss, gagnsæ og grundvallast á skýrri lagalegri umgjörð. Öll útboð eru auglýst á vefnum útboðsvefur.is og á evrópska TED-vefnum.
Á vefnum rikisreikningur.is er greining á útgjaldaflokkum innkaupa og undir lykiltölum má sjá innkaupaflokka greinda á margvíslegan hátt milli ára t.d. niður á kostnað á hvern starfsmann. Á opnirreikningar.is má svo sjá einstaka reikninga birgja.
Sjálfbær innkaup - stefna ríkisins
Stefna ríkisins um sjálfbær innkaup sem var samþykkt veturinn 2021 setur fram þá framtíðarsýn að innkaupin séu framsækin og sjálfbær og taki mið af umhverfis- og loftslagssjónarmiðum. Innkaup byggi á skilgreindum markmiðum og greiningu gagna, séu framkvæmd á gagnsæjan hátt og stuðli að samkeppni og nýsköpun. Innkaupafólk ríkisins inni störf sín af hendi af þekkingu og heiðarleika og mæti nýjum áskorunum í samvinnu við markaðinn. Fjármunir séu nýttir á samfélagslega ábyrgan hátt með hagsæld landsins og góða þjónustu við almenning að leiðarljósi.
Á grundvelli stefnunnar hefur verið gefin út [aðgerðaáætlun sjálfbærra innkaupa 2021-2024](www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/A%c3%b0ger%c3%b0ar%c3%a1%c3%a6tlun sj%c3%a1lfb%c3%a6r innkaup 2021-2024.pdf)
Sjá einnig:
Útgefið efni og skýrslur
Viðskiptaskilmálar ríkisinsLæst í upplýsingatækni - leiðbeiningarSjálfbær innkaup - stefna ríkisinsAðgerðaáætlun sjálfbærra innkaupaLeiðbeiningar um innkaupStöðumat opinberra innkaupaViðmið um góða starfshætti í innkaupumÞjónustusamningar - fyrirmyndRíkið upplýstur kaupandiFréttir
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
07 maí 2026
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Tólf hugbúnaðarfyrirtæki í nýjum rammasamningi Stafræns Íslands
23 maí 2025

Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Matslíkön og matsaðferðir
22 nóvember 2024
Opinber innkaup